Bćjarskrifstofur Grindavíkurbćjar aftur til Grindavíkur

  • Fréttir
  • 26. febrúar 2025

Bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar munu opna að fullu aftur að Víkurbraut 62 í Grindavík mánudaginn 10. mars. Stór hluti starfseminnar hefur frá rýmingu bæjarins verið í Tollhúsinu í Reykjavík, m.a. vegna nálægðarinnar við Grindavíkurnefndina, en bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur nú tekið ákvörðun um að flytja skrifstofurnar alfarið aftur heim. 

Bæjarstjórn Grindavíkur bókaði eftirfarandi á fundi sínum í gær:

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur ákveðið að bæjarskrifstofur sveitarfélagsins flytji alfarið úr Tollhúsinu heim til Grindavíkur.

Bæjarstjórn telur þessar breytingar vera gott skref til stuðnings við uppbyggingu í Grindavík. Grindavíkursamfélagið er sterkt og metnaðarfullt um uppbyggingu bæjarfélagsins, við erum meðvituð um stöðuna en hugsum vongóð heim.

Bæjarskrifstofunar munu opna mánudaginn 10. mars. Verið velkomin!

Bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar verða opnar kl. 9-15 mánudaga til fimmtudaga en 9-13 á föstudögum. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 15. apríl 2025

Vorferđ FebG í Ţórsmörk 21.maí 2025

Fréttir / 15. apríl 2025

Alli á Eyri og páskaegg í Kvikunni

Fréttir / 14. apríl 2025

Sundlaugin lokuđ í dag - Opiđ á morgun

Fréttir / 4. apríl 2025

Opiđ til Grindavíkur

Fréttir / 3. apríl 2025

Ađgengi takmarkađ til Grindavíkur

Fréttir / 1. apríl 2025

Eldgos hafiđ rétt norđur af Grindavík