Ţurfum ađ fá heimild til ađ gista heima

  • Fréttir
  • 16. apríl 2025

Húsfyllir var á öðrum fundi hagsmunasamtaka Grindvíkinga, Járngerðar sem fram fór í Gjánni í gær. 
Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður samtakanna opnaði fundinn með ávarpi um störf stjórnar frá síðasta fundi. Það er ljóst að félagið hefur ekki setið auðum höndum en stjórnin hefur hitt fjölmarga aðila sem koma að málefnum bæjarins eins og þingmenn, lögreglustjórann á Suðurnesjum og stjórnendur hjá fasteignafélaginu Þórkötlu. 

Á fundinum gafst íbúum færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og fóru fram góðar umræður þar sem áhersla var á að vinna bæði saman og standa saman að uppbyggingu bæjarins.

„Aðaláherslan er að geta dvalið næturlant í húsinum, það er númer 1, 2 og 3. Við þurfum að fá heimild til að fá að gista heima. Næstu skref eru síðan hópavinna og skipta niður á verkefnunum. Það eru  margir búnir að hafa samband og bjóða fram aðstoð við hópstjórn og þátttöku,“ segir Guðöbjörg.  

Hugmyndir að hópum eru:
•    Atvinnulífið - áskoranir, tækifæri og möguleikar.
•    Ferðaþjónusta - ásýnd bæjarins og ímynd Grindavíkur.
•    Menning - afþreying fyrir samfélagið og félagasamtök.
•    Velferð barna - íþróttir og menntun.
•    Skipulagsmál.
•    Aðlögun - upplýsingar, ástand og Þórkatla.

Þá þurfi að halda samtalinu áfram við til þess bærra stjórnvalda. „ Við eigum t.d. eftir að hitta fólk hjá Veðurstofunni, Almannavörnum og þingmenn kjördæmisins.“

Guðbjörg segir að nú verði fókus settur á sjómannahelgina. „Við viljum fara í smá hreinsunarstarf og gera bæinn okkar fallegan. Búa til stemningu í kringum það og fá fólk saman. Við stefnum öll á að mæta og halda upp á sjómannahelgina heima í Grindavík“ segir Guðbjörg að lokum. 

Meðfylgjandi myndir voru teknar á fundinum í Gjánni í gær.  


 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 13. maí 2025

Opnir kynningarfundir í Grindavík

Fréttir / 5. maí 2025

Alli á Eyri í Kvikunni

Fréttir / 30. apríl 2025

Rýmingarflautur prófađar í dag kl. 11

Fréttir / 16. apríl 2025

Ţurfum ađ fá heimild til ađ gista heima

Fréttir / 16. apríl 2025

„Viđ förum aftur heim“

Fréttir / 15. apríl 2025

Vorferđ FebG í Ţórsmörk 21.maí 2025

Fréttir / 15. apríl 2025

Alli á Eyri og páskaegg í Kvikunni

Fréttir / 14. apríl 2025

Sundlaugin lokuđ í dag - Opiđ á morgun