Það verður sannkölluð hátíðarstemning í Grindavík um sjómannadagshelgina þegar Grindvíkingar og gestir koma saman til að fagna sjómannadeginum, samfélaginu og sumrinu. Það er einstök tilfinning að geta aftur haldið hátíð í Grindavík og gleðilegt að bjóða fólk velkomið til Grindavíkur um sjómannadagshelgi.
Dagskráin er fjölbreytt og spannar nokkra daga. Eitthvað er í boði fyrir alla aldurshópa, tónleika, listsýningar, íþróttaviðburðir, hoppukastalar, kaffi og kökur... og auðvitað ball!
Það verður gaman að fylla bæinn aftur af lífi, gleði og samveru. Grindvíkingar taka vel á móti öllum. Verið velkomin til Grindavíkur!
MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 10:00
10:00 Menningarmorgunn í Kvikunni
Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, mætir í morgunkaffi og Vísis-systkinin taka lagið.
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ
12:30 Árleg ganga Kvenfélags Grindavíkur um Ingibjargarstíginn
Kvenfélag Grindavíkur býður upp á göngu um Ingibjargarstíginn. Gróðursett verða sumarblóm við minnisvarðann Ingibjargar Jónsdóttur fyrrverandi formanns félagsins. Mæting við bílastæðið í Selskógi, kl. 12:30.
14:00 Gönguferð um gamla bæinn með Diddu í Ásbyrgi
Didda í Ásbyrgi gengur um gamla bæinn í Grindavík og segir sögur af fólki og húsum. Lagt af stað frá Kvikunni.
16:00 Vortónleikar Grindavíkurdætra í Kvikunni
Grindavíkurdætur bjóða til fjölskylduvænna tónleika á meðan húsrúm leyfir.
Sundlaug Grindavíkur er opin 16:00-21:00
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ
Lokahóf körfuknattleiksdeildar UMFG
Körfuknattleiksdeild UMFG stendur fyrir lokahófi í nýja íþróttasalnum. Miðasala á Stubb.
LAUGARDAGUR 31. MAÍ
10:00 Grindavík Open í pílusalnum
Grindavík Open fer fram á ný í Grindavík. Mótið fer fram í Íþróttamiðstöð Grindavíkur.
10:00 Golfmót Mustad Autoline á Húsatóftavelli
Golfmót Mustad Autoline fer fram á Húsatóftavelli.
13:00-18:00 Opið hús hjá Grindjáunum
Bifhjólaklúbburinn Grindjánar verða með opið hús í aðstöðu sinni við Ægisgötu. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og kaffisopa.
22:00 Hafnargötuball í Kvikunni á vegum fyrirtækja í Grindavík
Fyrirtæki í Grindavík slá upp balli í Kvikunni fram eftir kvöldi þar sem Ingó kemur m.a. fram ásamt gestum.
Sundlaug Grindavíkur er opin 12:00-17:00
SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ
12:00-18:00 Opin vinnustofa að Gerðavöllum 17
Mæðgurnar Helga og Rut bjóða gestum í heimsókn á vinnustofuna sína að Gerðavöllum 17.
13:00 Sjómannadagsmessa í Grindavíkurkirkju
Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari, Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Kristjáns Hrannars Pálssonar, Gissur Páll Gissurarson syngur einsöng og Eliza Reid flytur hátíðarræðu. Sjómenn verða heiðraðir að lokinni messu.
14:30 Blómsveigur lagður að Von
Að lokinni messu verður gengið að Von þar sem lagður verður blómsveigur til minningar um drukknaða sjómenn. Þar munu Grindavíkurdætur syngja nokkur lög undir stjórn Bertu Drafnar Ómarsdóttur. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur býður kirkjugestum upp á kaffiveitingar á Sjómannastofunni Vör í tilefni dagsins.
Fjölskyldudagskrá við Kvikuna
14:00-17:00 Hoppukastalar
14:30-15:30 Kraftaþraut fyrir krakka
14:45-17:00 Fjölskyldudagskrá á hátíðarsviði
15:15 Sjómannaþrautir í umsjón Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar
14:30-17:00 60 ára afmæliskaffi í boði Vísis í Kvikunni
Vísir fagnar 60 ára afmæli í ár og býður gestum upp á kaffiveitingar í tilefni afmælisins.
18:30 Fiski- og steikarhlaðborð á Sjómannastofunni Vör
Veglegt hlaðborð á Sjómannastofunni Vör þar sem boðið verður upp úrval rétta. Borðapantanir í síma 426-8570.
Sundlaug Grindavíkur er opin 12:00-17:00
Við minnum á að í Grindavík má finna veitingastaði, gistingu og afþreyingu. Kynntu þér það sem í boði er á visitgrindavik.is.