Meistaraflokkar UMFG snúa heim – Grindavíkurbær og UMFG skrifa undir samstarfssamning

  • Fréttir
  • 1. maí 2025

Í dag, 1. maí, við hátíðlega athöfn í „nýja“ salnum í íþróttahúsi Grindavíkur, þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir íþróttafólk Grindavíkur árið 2024 og fagnað var 90 ára afmæli UMFG, undirrituðu forsvarsfólk Grindavíkurbæjar og UMFG samstarfssamning vegna ársins 2025 ásamt yfirlýsingu um heimkomu meistaraflokka UMFG.

Samstarfssamningurinn felur m.a. í sér styrk að upphæð 38 milljónir króna og afnot UMFG af íþróttamannvirkjum bæjarins á árinu 2025.

Í yfirlýsingunni, sem lesa má hér að neðan, kemur m.a. fram að meistaraflokkur karla í knattspyrnu mun leika heimaleiki sína í Grindavík í sumar og að körfuknattleiksdeildin stefni að því að leika hluta sinna leikja í bænum næsta vetur.

„Heimkoma íþróttaliðanna er stórt og táknrænt skref á heimleið okkar allra,“ segir í yfirlýsingunni, sem fjallar jafnframt um samstöðu samfélagsins og þann mikilvæga stuðning sem grindvísk íþróttafólk hefur notið um land allt á erfiðum tímum. Grindavíkurbær mun leggja áherslu á viðgerðir og endurbætur á íþróttamannvirkjum bæjarins og tryggja öruggt, metnaðarfullt og aðlaðandi umhverfi fyrir keppendur, áhorfendur og sjálfboðaliða.

Sameiginleg yfirlýsing Ungmennafélags Grindavíkur og Grindavíkurbæjar um heimkomu meistaraflokka UMFG í körfubolta og fótbolta

Skýr og einlægur vilji okkar Grindvíkinga er að íþróttaliðin okkar leiki heimaleiki sína í Grindavík á ný. Knattspyrnudeild UMFG mun leika heimaleiki sína í Grindavík í sumar og körfuknattleiksdeildin mun a.m.k. leika hluta af sínum heimaleikjum í Grindavík næsta vetur.

Heimkoma íþróttaliðanna er stórt og táknrænt skref á heimleið okkar allra. Heimavöllurinn okkar verður áfram tákn samkenndar og elju samfélagsins. Það er öllum ljóst að það verður stór stund þegar hjartsláttur samfélagsins slær í takt við trommurnar á heimavelli í Grindavík. Það liggur í loftinu að við eigum eftir að vinna stóra sigra heima í Grindavík og þá er stemmingin engri annarri lík.

Við viljum færa innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu íþróttafélaga, sveitarfélaga, þjálfara og sjálfboðaliða um land allt sem hafa opnað faðminn fyrir grindvísku íþróttafólki á öllum aldri og veitt skjól á erfiðum tímum. Ykkar hlýja móttaka og stuðningur skiptu sköpum, ekki aðeins fyrir æfingar og keppnir, heldur líka fyrir þau ómetanlegu félagslegu tengsl sem íþróttir skapa og styrkja. Þið hafið átt stóran þátt í að gera þessa heimkomu að veruleika.

Grindavíkurbær mun á næstu misserum leggja áherslu á viðgerðir og endurbætur á íþróttamannvirkjum bæjarins. Stefnt er að því að skapa öruggt, aðlaðandi og metnaðarfullt umhverfi fyrir keppendur, áhorfendur og sjálfboðaliða.

Við ítrekum að öryggi allra sem sækja íþróttaviðburði í Grindavík verður ætíð í forgangi.

Áfram Grindavík!

Grindavík, 1. maí 2025 

Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar 

Klara Bjarnadóttir, formaður Ungmennafélags Grindavíkur 

Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar UMFG 

Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar UMFG


Deildu þessari frétt

AÐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 22. maí 2025

Götuboltamót Stinningskalda 2025

Fréttir / 21. maí 2025

Sjómannadagshelgin í Grindavík 2025

Fréttir / 12. maí 2025

Alli á Eyri í Kvikunni

Fréttir / 9. maí 2025

Heimkomuhátíð á Grindavíkurvelli

Fréttir / 30. apríl 2025

Rýmingarflautur prófaðar í dag kl. 11

Fréttir / 17. apríl 2025

Opnunartími sundlaugarinnar um páskana