Páskaganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbćjar

  • Skemmtun
  • 26. mars 2018

Á annan í páskum 2. apríl verður boðið upp á gönguferð með leiðsögn um stórbrotið umhverfi Bláa Lónsins. Gangan hefst kl. 11.00 við bílastæði Bláa lónsins og er áætlað að hún taki um 3 klukkustundir. Hægt er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Gangan er í boði Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar og enginn þátttökukostnaður er í gönguna.

Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögulegum tíma), farið með Skipsstíg, fornri þjóðleið, haldið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin gömlu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið um hið litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind.

Góður skófatnaður er æskilegur og gott er að taka með sér smá nesti. Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð. Sigrún Franklín verður leiðsögumaður í göngu


Deildu ţessari frétt

AĐRIR VIĐBURĐIR

Fréttir / 23. desember 2024

Jólakveđja frá bćjarstjórn

Fréttir / 18. desember 2024

Foreldranámskeiđ fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 8. desember 2024

Samverustundir 8.-13. desember

Fréttir / 8. desember 2024

Jólaađstođ félagasamtaka í Grindavík

Tónlistaskólafréttir / 4. desember 2024

Jólatónleikar 7. desember 2024

Fréttir / 3. desember 2024

Jólabođ eldri borgara úr Grindavík