Fundur 1665

  • Bæjarráð
  • 11. september 2024

1665. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í Tollhúsi við Tryggvagötu, þriðjudaginn 10. september 2024 og hófst hann kl. 14:00.


Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sævar Þór Birgisson, varamaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. 

Einnig sátu fundinn:
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Fannar Jónasson, bæjarstjóri og Guðjón Bragason, lögfræðingur. 

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.


Dagskrá:

1.      Íbúðarhúsnæði í Grindavík - staða mála - 2409004
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sérfræðingur á tæknisviði Grindavíkurbæjar. Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. Frá fasteignafélaginu Þórkötlu: Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri og Dagný Lísa Davíðsdóttir. Frá NTÍ: Hulda Ragnheiður Árnadóttir forstjóri og Jón Örvar Bjarnason. 

Framkvæmdastjóri Þórkötlu og formaður NTÍ kynntu stöðu mála hjá þeim og svöruðu fyrirspurnum.
         
2.      Samþykktir og stjórnsýsla Grindavíkurbæjar - Tillögur vinnuhóps - 2406069
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Lögð fram drög að erindisbréfum fyrir innviðanefnd og samfélagsnefnd. 

Bæjarráð samþykkir framlögð gögn með þeirri breytingu að atvinnumál verði ekki hjá innviðanefnd heldur hjá bæjarráði og vísar þeim svo breyttum til bæjarstjórnar.
         
3.      Aukinn kostnaður leikskóla í kjölfar náttúruhamfara í Grindavík - 2408036
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Lagt fram bréf til sveitarfélaga, dags. 6. september 2024 vegna uppgjörs á leikskóladvöl grindvískra leikskólabarna.
         
4.      Almannavarnanefndir á Suðurnesjum - 2409005
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Almannavarnanefnd Suðurnesja, utan Grindavíkur leggur til að hafist verði handa við gerð samstarfssamnings sveitarfélaga á Suðurnesjum um starfsemi sameiginlegrar almannavarnanefndar á Suðurnesjum. 

Bæjarráð tekur undir þessar hugmyndir og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
         
5.      Mál YFN nr. 3/2024 - Norðurljósavegur 1, Grindavík, fnr. 209-2590 - 2409009
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Lagður fram úrskurður yfirfasteignamatsnefndar þar sem erindi kæranda er hafnað.
         
6.      Fasteignagjöld 2024 - Flatabrim ehf. - 2409013
    Lagður fram tölvupóstur frá Friðrik Einarssyni vegna fasteignaskatts á NLI árið 2024 og minnisblað Guðjóns Bragasonar um málið. 

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
         
7.      Aðstaða UMFG til æfinga og keppni - 2404147
    Málinu er frestað til næsta fundar.
         
8.      Víkurbraut 28 - erindi frá Novum lögmönnum - 2409012
    Lögð fram drög að bréfi til að svara erindinu. 

Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að svara erindinu í samræmi við framlagt bréf.
         
9.      Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar 2024 - 2403178
    Lagðar fram fundargerðir fjallskilanefndar dags. 28.08.2024 og 05.09.2024. 
Lagt fram álit MAST á fyrirhuguðum fjárrekstri í Þórkötlustaðarrétt í Grindavík. 

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu fjallskilanefndar um að rétta í Þórkötlustaðarétt sunnudaginn 22. september nk. kl. 14:00.
         

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:20.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarstjórn / 28. janúar 2025

Fundur 581

Bæjarráð / 21. janúar 2025

Fundur 1675

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. janúar 2025

Fundur 86

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júlí 2024

Fundur 82

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. maí 2024

Fundur 81

Afgreiðslunefnd byggingamála / 27. maí 2024

Fundur 80

Afgreiðslunefnd byggingamála / 18. apríl 2024

Fundur 79

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. nóvember 2024

Fundur 85

Afgreiðslunefnd byggingamála / 20. nóvember 2024

Fundur 84

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. ágúst 2024

Fundur 83

Afgreiðslunefnd byggingamála / 8. júní 2023

Fundur 73

Afgreiðslunefnd byggingamála / 11. maí 2023

Fundur 72

Innviðanefnd / 16. desember 2024

Fundur 3

Innviðanefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 14. janúar 2025

Fundur 1674

Samfélagsnefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 7. janúar 2025

Fundur 1673

Bæjarstjórn / 17. desember 2024

Fundur 580

Samfélagsnefnd / 11. desember 2024

Fundur 3

Bæjarstjórn / 28. nóvember 2024

Fundur 579

Bæjarráð / 12. nóvember 2024

Fundur 1670, bæjarráð

Innviðanefnd / 18. nóvember 2024

Fundur 2, Innviðanefnd

Bæjarráð / 5. nóvember 2024

Fundur 1669

Bæjarstjórn / 29. október 2024

Fundur 578

Innviðanefnd / 10. október 2024

Fundur 1

Samfélagsnefnd / 16. október 2024

Fundur 1

Bæjarráð / 22. október 2024

Fundur 1668

Bæjarráð / 8. október 2024

Fundur 1667

Bæjarráð / 17. september 2024

Fundur 1666

Bæjarstjórn / 24. september 2024

Fundur 577