Auglýsing um afslátt fyrir einstæða foreldra og ef báðir foreldrar eru í námi og systkinaafslátt
Einstæðir foreldrar og ef báðir foreldrar eru í námi geta sótt um afslátt af leikskólagjaldi.
Einnig er hægt að sækja um systkinaafslátt.
Foreldrar eru minntir á að sækja um afsláttinn fyrir komandi skólaár í gegnum íbúgátt á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is
Afslátturinn tekur gildi í mánuðnum eftir að umsókn berst og gildir einungis eitt skólaár í senn, þ.e. 1. ágúst – 31. júlí.
Systkinaafsláttur er samræmdur fyrir börn á stofnunum bæjarins og fyrir börn hjá dagforeldrum.
Afsláttur vegna annars barns verður 50%.
Afsláttur vegna þriðja barns verður 100%.
Afsláttur vegna fjórða barns verður 100%.
Umsóknir frá síðasta skólaári gilda ekki.