Laust starf við leikskólann Laut
Leikskólakennara , þroskaþjálfa eða annað uppeldismenntað fólk vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík sem fyrst.
Um er að ræða 80 % starf, fjórir dagar í viku frá 08:00-16:00, frí fimmta daginn. Einnig er full vinnustytting hjá kennurum í leikskólanum Laut sem er tekin út í heilum dögum dreift yfir skólaárið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Leikskólinn er fjögra deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni – Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu
Menntunar- og hæfniskröfur
Hæfniskröfur:
Grindavík er góður bær :) Fjölskylduvænn staður þar sem ungir sem gamlir hafa nóg að sýsla, svo er Grindavíkurbær þekktur fyrir frábært íþróttastarf. Leikskólinn Laut er þekktur fyrir frábæran starfsmannahóp sem er glaðlyndur og samstíga í leik og starfi.
Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið frida@grindavik.is
Endurnýja þarf eldri umsóknir.