Um helgina var haldið Mjölnir Open glímumótið þar sem keppt var í uppgjafarglímu. Á mótinu voru margir bestu glímumenn landsins. Júdódeild Njarðvíkur er með æfingar í brazilian jiu jitsu og er sá hópur gjarnan kallaður Sleipnir/UMFN. Þrír keppendur kepptu frá Sleipni/UMFN á Mjölnir Open, þar á meðal Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson sem nýverið var í æfingabúðum í Tælandi.
Björn Lúkas keppti í -77 kg flokki karla en sá flokkur var sá fjölmennasti á mótinu. Björn Lúkas sigraði sína fyrstu glímu á armlás, og næstu tvær sigraði hann á fótalás. Björn Lúkas mætti þjálfaranum sínum, Helga Rafni Guðmundssyni í úrslitum flokksins eftir að hafa slegið út alla aðra mótherja í flokknum og var það Helgi sem stóð uppi sem sigurvegari eftir góða og jafna glímu.
Björn Lúkas, sem er eingöngu 16 ára stóð sig frábærlega á þessu móti. Hann er einn efnilegasti bardagamaður landsins en hann æfir m.a. taekwondo og júdó með Grindavík og brazilan jiu jitsu hjá Sleipni/UMFN. Björn hefur verið Íslandsmeistari í öllum þessum greinum og Norðurlandameistari í júdó. Hann var nýverið í æfingabúðum í Tælandi þar sem hann lagði m.a. stund á brazilan jiu jitsu, blandaðar bardagalistir (MMA) og tælenskt sparkbox (muay thai). Þetta voru því draumaúrslit fyrir keppendurnar frá Suðurnesjunum, en fyrir vikið var Sleipnir/UMFN í 2. sæti stigakeppninnar þrátt fyrir einöngu 3 keppendur. Mjölnir Open er stærsta og sterkasta mót í uppgjafarglímu sem haldið er hvert ár.
Brazilian jiu jitsu er glímuíþrótt sem er skyld júdó. Helsti munur á þeim íþróttum er að í brazilian jiu jitsu er mun meiri áhersla á gólfglímu og svo er keppnum í íþróttinni skipt í tvennt; annars vegar keppni í júdógalla, og hins vegar án hans, en þá er keppt í stuttbuxum og bol. Sú keppni er gjarnan kölluð uppgjafarglíma án galla. Hægt er að sigra glímu ef andstæðingur gefst upp vegna hengingar eða liðamótlás, en einnig er hægt að sigra glímu á stigum.