Að gefnu tilefni viljum við benda bæjarbúum á að umferð reiðhesta er bönnuð innan þéttbýlismarka annars staðar en á merktum reiðstígum nema með sérstöku leyfi eða samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar, sbr. 30. gr. 7. kafla lögreglusamþykktar. Stígurinn meðfram sjónum á þessum myndum er göngu- og hjólareiðastígur en innan bæjarmarka Grindavíkur má finna fjölmarga reiðstíga sem hestamenn geta nýtt sér að vild.
Ábendingar um ferðir hestamanna utan merktra reiðleiða skal komið til lögreglu, enda er það í verkhring hennar að framfylgja lögreglusamþykktinni.