Fundur 1702

  • Bæjarráð
  • 11. febrúar 2026

1702. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 10. febrúar 2026 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Birgitta H. Ramsay Káradóttir, varamaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, varaformaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur. Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Í upphafi fundar óskaði varaformaður eftir heimild til að taka eftirfarandi fjögur mál á dagskrá með afbrigðum:

2602024 Fasteignagjöld 2026 - Víkurbraut 46, beiðni um niðurfellingu

2602023 Fasteignagjöld 2026 - Hafnargata 7b, beiðni um niðurfellingu

2602022 Fasteignagjöld 2026 - Fálkahlíð 1-5, beiðni um niðurfellingu

2602021 Fasteignagjöld 2026 - Altjónshús Samþykkt samhljóða.

Birgitta Hrund og Guðjón sátu fundinn í Teams.

Dagskrá:

1.      Dagmæður - húsnæði í eigu bæjarins - 2602016

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir húsnæði hjá bænum undir starfsemi dagmæðra.

Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að vinna málið áfram.

2.      Ný vefsíða Grindavíkurbæjar - 2507001

Gert er ráð fyrir að opna nýja heimasíðu seinni hluta febrúar eða fyrri hluta mars.

Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs mun ritstýra heimasíðunni.

3.      Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga - 2601060

Lagt fram bréf frá HES til ráðherra, dags. 5. febrúar sl. og minnisblað um fyrirhugaðar lagabreytingar.

4.      Skil á lóð -Staðarsund 3 - 2602010

Þórunn Björg Ásmundardóttir óskar eftir því að aflýsa lóðarleigusamningi að Staðarsundi 3, F2368457 og skila lóðinni skv. meðfylgjandi umsókn dags 5.2.2026. Bæjarráð samþykkir lóðaskilin en vekur athygli á að það eru fleiri eigendur undir þessum lóðarleigusamningi og þarf því undirritun allra eigenda á yfirlýsinguna.

5.      Fasteignagjöld 2026 - 2506033

Álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2026 er lokið.

Lögð fram yfirlit yfir álögð gjöld.

6.      Fasteignagjöld 2026 - altjónshús - 2602021

Lagður fram listi frá NTÍ yfir þau hús sem metin eru altjónuð.

Bæjarráð samþykkir að fella niður fasteignagjöld ársins 2026 á altjónuð mannvirki.

7.      Fasteignagjöld 2026 - Víkurbraut 46, beiðni um niðurfellingu - 2602024

Um er að ræða altjónshús og því munu fasteignagjöld 2026 verða felld niður, skv. bókun bæjarráðs í máli nr. 6 á fundi 1702.

8.      Fasteignagjöld 2026 - Fálkahlíð 1-5, Beiðni um niðurfellingu - 2602022

Bæjarráð samþykkir að fella niður fasteignagjöld 2026 af húsnæði sem er afgirt samkvæmt ákvörðun almannavarna eða Grindavíkurnefnd og umgengni óheimil um lóð og mannvirki af öryggisástæðum.

Af þeim sökum er fallist á erindið.

9.      Fasteignagjöld 2026 - Hafnargata 7B, beiðni um niðurfellingu eða afslátt - 2602023

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

10.      Fasteignagjöld 2026 - Víkurbraut 31, beiðni um niðurfellingu - 2602017

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:05.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 3. mars 2026

Fundur 1704

Bæjarstjórn / 26. febrúar 2026

Fundur 593

Innviðanefnd / 23. febrúar 2026

Fundur 14

Afgreiðslunefnd byggingamála / 23. febrúar 2026

Fundur 94

Bæjarráð / 18. febrúar 2026

Fundur 1703

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 4. febrúar 2026

Fundur 1701

Bæjarstjórn / 27. janúar 2026

Fundur 592

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. janúar 2026

Fundur 93

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11