Dale Carnegie fyrir Grindvíkinga
Rauði krossinn í samstarfi við Grindavíkurbæ með styrk frá Ríó Tinto býður ungu fólki frá Grindavík á námskeið hjá Dale Carnegie. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Um er að ræða gefandi og skemmtilegt námskeið sem ýtir undir frumkvæði og eflir sjálfstraust. Að hafa jákvæða sjálfsmynd og trú á sjálfa/n sig hefur sjaldan verið jafn mikilvægara. Á þessu námskeiði lærum við að þekkja okkur sjálf betur, setja okkur skemmtileg markmið og þjálfum færni sem gerir okkur kleift að ná þeim.
Í gegnum fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar þjálfumst við í því að stíga út fyrir þægindahringinn og takast á við áskoranir. Aukið jákvætt viðhorf gerir okkur kleift að hugsa í lausnum þegar við stöndum frammi fyrir erfiðum verkefnum. Við þjálfumst í því að vinna með öðrum og mynda sterkari tengsl við fólkið í kringum okkur. Á námskeiðinu einblínum við á þá jákvæðu eiginleika sem koma fram með því að hrósa og hvetja áfram.
Áherslur á námskeiðinu:
- Lærum frumkvæði í samskiptum og byggja ný vinasambönd
- Eflum sjálfstraust og lærum að þekkja okkur sjálf og okkar tilfinningar
- Lærum aðferðir til að vinna með kvíða og streitu og kalla fram jákvæðar hugsanir
- Lærum hvað hrós og hvatning getur haft jákvæð áhrif á okkur sjálf og aðra
- Þjálfum okkur í að tala fyrir framan hóp og verða betri í tjáningu
- Vinnum með aðferðir til að styrkja sambönd við þau sem skipta okkur máli
- Vinnum með markmiðasetningu, skipulag og gildin okkar
- Skoðum ávinning þess að vera dugleg og leggja okkur fram
- Aukum hjá okkur hugrekki til að taka af skarið og framkvæma
Fjórir aldurshópar eru í boði:
- Ungt fólk á aldrinum 10 til 12 ára (5-7.bekkur) hefst 24. jan. 10.00 til 13.00, sex skipti
- Ungt fólk á aldrinum 13 til 15 ára (8-10.bekkur) hefst 28. jan. 17.00 til 20.30, sex skipti
- Ungt fólk á aldrinum 16 til 19 ára (framhaldsskóli) hefst 22. jan. 18.00 til 22.00, átta skipti
- Ungt fólk á aldrinum 20 til 25 ára (háskóli/vinna) hefst 27. jan. 18.00 til 22.00, átta skipti
Námskeiðin eru staðbundin og fram fram í Ármúla 11, 3. hæð.
Skráning er á dale.is og upplýsingar í síma 864 5116 alla daga vikunar.
Foreldrar þurfa að skrá börn yngri en 18 ára og skrá sig sem greiðanda og setja inn afsláttarkóðann Grindavík2026 og þá virkjast 100% afsláttur.
AĐRAR FRÉTTIR
Fréttir / 5. febrúar 2026
Fréttir / 4. febrúar 2026
Fréttir / 2. febrúar 2026
Fréttir / 29. janúar 2026
Fréttir / 28. janúar 2026
Fréttir / 23. janúar 2026
Fréttir / 19. janúar 2026
Fréttir / 11. janúar 2026
Fréttir / 29. desember 2025
Fréttir / 20. desember 2025
Fréttir / 19. desember 2025
Fréttir / 18. desember 2025
Fréttir / 18. desember 2025
Fréttir / 16. desember 2025
Fréttir / 16. desember 2025
Fréttir / 16. desember 2025
Fréttir / 11. desember 2025