13. fundur innviðanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 19. janúar 2026 og hófst hann kl. 14:00.
Fundinn sátu: Lilja Ósk Sigmarsdóttir, varaformaður, Hjálmar Hallgrímsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Ómar Davíð Ólafsson, varamaður, Unnar Á. Magnússon var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Gunnar Már Gunnarsson, varamaður, Páll Jóhann Pálsson, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn: Sigurður A Kristmundsson, hafnarstjóri, Elísabet Bjarnadóttir, sérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs, Guðjón Bragason, Lögfræðingur, Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi.
Einnig sat fundinn Atli Geir Júlíusson sem verður tímabundið í stöðu skipulagsfulltrúa.
Dagskrá:
1. Aðalskipulagsbreyting vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi - 2510007
Á 11. fundi innviðanefndar var samþykkt að skipulagsfulltrúi myndi hefja vinnu við gerð aðalskipulagsbreytinga á Norðurljósavegi ásamt vegamótum Norðurljósavegar og Grindavíkurvegar í samráði við Vegagerðina. Skipulagsráðgjafi er frá Alta ráðgjöf ehf. og eru drög að breytingartillögu lögð fram á fundinum. Samráð hefur verið haft við Vegagerðina og beiðni send á Umhverfisstofnun, Náttúruverndarstofnun, Bláa lónið, Northern Light Inn, Veðurstofuna og HS Veitur þar sem óskað var eftir athugasemdum. Einnig var haft samband við Skipulagsstofnun varðandi málsmeðferðina á fyrstu stigum málsins. Athugasemdir bárust frá nokkrum aðilum og hafa þær verið teknar saman í skjal sem fylgir. Aðalathugasemdirnar voru frá Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun þar sem bent var á verndarákvæði hrauns skv. 61.gr. náttúruverndarlaga og á hönnun vegamótanna. Athugasemdir voru sendar áfram á Vegagerðina og HS Orku og er beðið svara.Farið var yfir þær athugasemdir sem bárust. Innviðanefnd telur ábendingarnar réttmætar en að enginn vafi leiki á því að brýn nauðsyn sé á endurbótum bæði á vegi og gatnamótum, enda hafi Vegagerðin margsinnis lýst áhyggjum sínum varðandi skert umferðaröryggi á Norðuljósavegi og vegamótum hans við Grindavíkurveg.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
2. Orkuvinnsla í Eldvörpum - Umsókn um skipulagsbreytingar - 2601032
HS Orka hefur lagt fram ósk um að hefja skipulagsvinnu í tengslum við jarðhitanýtingu í Eldvörpum. Um er að ræða matsskylda framkvæmd samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og krefst aðalskipulagsbreytingar og gerð nýs deiliskipulags. Lögð er fram beiðni frá framkvæmdaraðila, tillaga að skipulags- og matslýsingu dags. janúar 2026 og matsáætlun dags. desember 2025. HS Orka áformar að hefja skipulagsvinnu um leið og heimild Grindavíkurbæjar fæst.
Innviðanefnd fellst á beiðni HS Orku um að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi Grindarvíkurbæjar 2018-2032 samhliða gerð nýs deiliskipulags á orkuvinnslusvæði í Eldvörpum.
Eftir yfirferð nefndar á drögum skipulags- og matslýsingar, er skipulagsfulltrúa falið að koma ábendingum um breytingar á lýsingunni til skipulagsráðgjafa miðað við umræður á fundinum. Nefndin samþykkir að öðru leyti lýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að leita umsagnar um hana hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi skv. 30. gr Skipulagslaga nr. 123/2010.
3. Deiliskipulag miðbær - hafnarsvæði, tillaga að breytingum - 2601038
Lagðar voru fram til umræðu nokkrar hugmyndir um landmótun og mögulegar breytingar á landnotkun innan deiliskipulags miðbæjar - hafnarsvæðis. Óskað er eftir að innviðanefnd taki afstöðu til þess hvernig þessar hugmyndir samræmast núverandi skipulagi.
Innviðanefnd gerir ekki athugasemdir við áform um bílastæði innan lóðar Hafnargötu 31. Nefndin samþykkir tillögu skipulagsnefndar um uppsetningu mana til að fegra ásýnd svæðisins, skv. meðfylgjandi teikningu.
Nefndin telur breytinguna falla undir málsmeðferð um óverulega breytingu sbr. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga þar sem hún samræmist notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis og felur skipulagsfulltrúa að útfæra og grenndarkynna breytingu á deiliskipulagi miðbæjar- og hafnarsvæðis.
4. Salthúsið Stamphólsvegi 2 - framtíðarhorfur - 2601033
Kynning á gangi mála við ákvörðun á því hvort halda skuli Salthúsinu eða ekki.
Erindi var tekið fyrir. Innviðanefnd telur rétt að húsið fái að standa þangað til annað verður ákveðið.
5. Borgarhraun 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - 2511047
Lögð var fram til umsagnar innviðanefndar umsókn um breytingar á Borgarhrauni 2 til að geta starfrækt lítið kaffihús í kjallara Gistiheimilis Grindavíkur.
Innviðanefnd telur rekstur lítils kaffihúss samræmast stefnu aðalskipulags fyrir íbúðarbyggð ÍB3, sbr. kafla 2.1.1 í greinargerð með aðalskipulagi Grindavíkurbæjar og gerir því ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis í samræmi við fyrirliggjandi umsókn að undangenginni grenndarkynningu fyrir Borgarhrauni 1, 3, 4 og Víkurbraut 29.
6. Umsagnarbeiðni - Nýtt deiliskipulag - Borholur í Krýsuvík - 2601023
Hafnarfjarðarkaupstaður hefur óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar vegna nýs deiliskipulags og breytingu á aðalskipulagi vegna rannsóknarborhola í Krýsuvík, mál nr. 869/2025 og 867/2025 á skipulagsgátt. Tillagan er í auglýsingu, öll gögnin eru kynnt samhliða til að stytta málsmeðferðartímann. Meðfylgjandi er skipulags- og matslýsing ásamt vinnslutillögu deiliskipulags. Til hliðsjónar er í fylgigögnum umsögn Grindavíkurbæjar um vinnslutillögu í sama máli, frá ágúst 2025.
Innviðanefnd vísar til fyrri umsagnar um málið. Skipulagsfulltrúa falið að vinna ítarlegri umsögn um málið með aðstoð lögfræðings bæjarins og skila henni að lokum inn á Skipulagsgátt.
7. Mat á vernd húsa vegna umsókna um niðurrif - 2601037
Samkvæmt ákvörðun bæjarins um að leggja skuli fyrir þær eignir sem sóst er eftir að rífa eru hér lagðar fram byggingarleyfisumsóknir fyrir niðurrifi fyrir mannvirkin á lóðum Mánagötu 19, Mánagötu 21 og Mánagerði 2. Óskað er eftir afstöðu innviðanefndar til þessara áforma um niðurrif.
Innviðanefnd gerir ekki athugasemdir við áform um niðurrif mannvirkja á Mánagötu 19, Mánagötu 21 og Mánagerði 2.
8. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2026 - 2601036
Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2026 lögð fram til samþykktar.
Nefndin samþykkir tillögu um gjaldskrá hafnarinnar fyrir árið 2026 og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.
9. Dreifing húsdýraáburðar til uppgræðslu á svæði milli varnargarða - 2601024
Fyrir hönd Hestamannafélagsins Brimfaxa óskar Valgerður S. Valmundsdóttir eftir heimild til að dreifa húsdýraáburði til uppgræðslu á milli varnargarða austast í bænum. Brimfaxi og Reykjagarður hf. (kjúklingarækt) gerðu samning dags. 15.3.2021 um nýtingu húsdýraáburðar til áburðargjafar á beitarsvæði hestamannafélagsins og víðar. Samkvæmt Valgerði hefur grasfræjum nú þegar verið dreift og var nýting áburðar til uppgræðslu hafin áður en náttúruhamfarir hófust.
Umrætt landsvæði er í eigu bæjarins og er um 10 ha að stærð. Syðsti hluti svæðisins, um 2 ha, er skilgreindur sem ÍÞ3 í gildandi aðalskipulagi, nánar tiltekið hesthúsahverfi, beitiland o.fl. ÍÞ3-svæðið skiptist í suður- og norðurhluta, en nyrðri hlutinn var nýttur sem beitiland, alls um 9 ha. Af því svæði hafa um 4 ha farið undir hraun, en um 2 ha eru eftir hinum megin við hraunið.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er landsvæðið jafnframt skilgreint sem óbyggt svæði, og er ekkert deiliskipulag í gildi fyrir það. Vegna náttúruhamfara undanfarinna ára hafa forsendur nýtingar á mörgum svæðum breyst verulega, og hafa sum þeirra orðið ónothæf vegna nýs hrauns. Beitiland Brimfaxa hefur þannig skerst, eins og áður hefur verið rakið. Samkvæmt aðalskipulagi eru enn um 5 ha skilgreindir sem ÍÞ3/beitiland, en þeir hektarar eru staðsettir utan varnargarða og því áfram hætta á að hraun renni yfir svæðið. Með hliðsjón af þessu er skilningur nefndarinnar á framkominni beiðni fyrir hendi.
Þrátt fyrir það liggur engin ákvörðun fyrir um framtíðarhlutverk landsvæðisins, enda hefur svæðinu ekki enn verið formlega skilað til bæjarins og ekki hefur verið lýst yfir goslokum. Jafnframt liggur fyrir að fleiri aðilar hafa lýst yfir áhuga á nýtingarrétti á svæðinu.
Með hliðsjón af framangreindu er ekki unnt að taka ákvörðun um eða veita leyfi fyrir áburðardreifingu að svo stöddu, þar sem nauðsynleg gögn liggja ekki fyrir, þar á meðal dreifingaráætlun og umsagnir frá viðeigandi ríkisstofnunum og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Þá ber jafnframt að hafa í huga að tímasetning beiðninnar er ekki í samræmi við gildandi reglur, þar sem dreifing áburðar er óheimil við frost eða vætutíð. Máli er frestað þar til frekari upplýsingar liggja fyrir. Skipulagsfulltrúa er falið að vinna málið áfram.
10. Fundargerðir 2025 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2502040
Fundargerð 55. fundar Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja sem fram fór þann 13. 11. 2025 lögð fram til kynningar.
11. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 90 - 2510012F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
12. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 91 - 2511005F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
13. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 92 - 2512001F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:30.