Rúmlega 1.400 starfa hjá fyrirtćkjum í Grindavík

  • Fréttir
  • 22. janúar 2026

Tæplega 800 manns voru að störfum í Grindavík þann 7. janúar síðastliðinn samkvæmt könnun sem atvinnuteymi Grindavíkurbæjar framkvæmdi. Markmið könnunarinnar var að öðlast betri innsýn í umfang atvinnurekstrar í bænum og stöðu starfsemi fyrirtækja.

Að þessu sinni var jafnframt óskað eftir upplýsingum um heildarfjölda starfsfólks fyrirtækjanna í Grindavík. Samkvæmt þeim upplýsingum starfa alls 1.410 starfsmenn hjá fyrirtækjum í Grindavík. Munurinn á þessum tölum má meðal annars skýra með því að ekki eru allir starfsmenn við störf á sama tíma. Þar má nefna þætti á borð við vaktavinnu, hlutastörf, veikindi, orlof og aðra fjarveru. Niðurstöðurnar gefa því bæði mynd af raunverulegri viðveru starfsfólks í bænum á virkum degi og heildarstærð atvinnulífsins í Grindavík.

 

  7.1.2026

8.10.2025

26.6.2025 19.3.2025 19.2.2025 15.1.2025
Ferðaþjónusta og veitingar 342 357 348 334 342 330
Sjávarútvegur og tengd starfsemi 233 245 231 229 222 246
Eldi á fiski o.fl. (lagareldi) 38 36 38 33 33 28
Iðnaður og þjónusta 153 138 135 129 126 130
Opinber starfsemi 18 22 21 24 24 26
Alls 784 798 773 749 747 760
             
Breyting frá fyrri mánuði -14 25 24 2 -13  
Hlutfallsbr. frá síðustu talningu -1,75% 3,28% 3,2% 0,3% -1,7%  
Uppsöfnuð breyting frá 15.01.2025 3,16% 5,0%        

 

Eingöngu fyrirtæki með starfsemi í Grindavík

Könnunin var send til fyrirtækja sem vitað var að væru með starfsemi í Grindavík. Í kjölfarið var haft samband símleiðis við þau fyrirtæki sem ekki höfðu svarað, til að tryggja sem heildstæðastar upplýsingar. Könnunin náði eingöngu til þeirra starfsmanna sem mæta til vinnu í Grindavík, en ekki þeirra sem vinna fyrir grindvísk fyrirtæki utan sveitarfélagsins. Einnig eru starfsmenn fyrirtækja með skráð aðsetur utan Grindavíkur ekki taldir með, svo sem verktakar sem vinna við varnargarða eða utanaðkomandi þjónusta fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. febrúar 2026

Handavinnustund í Grindavík

Fréttir / 2. febrúar 2026

Lokađ fyrir kalt vatn á Bađsvöllum í dag

Fréttir / 23. janúar 2026

Dale Carnegie námskeiđ fyrir fullorđna

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffiđ verđur nćst 12. janúar