Alexander Veigar og Emma valin íţróttafólk Grindavíkur 2025

  • Fréttir
  • 11. janúar 2026

Pílukastarinn Alexander Veigar Þorvaldsson og knattspyrnukonan Emma Fanndal Jónsdóttir voru í gær valin íþróttakarl og íþróttakona Grindavíkur 2025. Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu var valið íþróttalið Grindavíkur 2025 og Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, þjálfari Grindavíkur 2025.

Alexander Veigar var valinn íþróttakarl Grindavíkur þriðja árið í röð. Alexander er stigameistari PSÍ 2025 og margfaldur Íslandsmeistari. Hann sýndi styrk sinn bæði heima og erlendis, þar á meðal á heimsmeistaramóti ungmenna, og hefur skýr markmið um að stefna enn hærra.

Emma leiddi sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur til upp um deild í sumar með yfirvegun, styrk og framúrskarandi varnarvinnu. Hún er einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins og sannkallaður leiðtogi.

Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur tryggði sér sæti í Bestu deild kvenna þrátt fyrir spár um annað í upphafi tímabils. Liðið sannaði að með trú á verkefninu, góðri liðsheild og mikilli seiglu er allt mögulegt.

Gylfi tók við nýstofnuðu liði og skapaði ósigrandi liðsheild. Hann er leiðtogi sem nær fram því besta í fólkinu sem vinnur með honum og árangurinn er eftir því.

Nánar verður sagt frá öðrum viðurkenningum á næstu dögum.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. febrúar 2026

Handavinnustund í Grindavík

Fréttir / 2. febrúar 2026

Lokađ fyrir kalt vatn á Bađsvöllum í dag

Fréttir / 23. janúar 2026

Dale Carnegie námskeiđ fyrir fullorđna

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffiđ verđur nćst 12. janúar