Íţróttafólk Grindavíkur 2025 heiđrađ á laugardaginn

  • Fréttir
  • 5. janúar 2026

Árlega standa Grindavíkurbær og UMFG fyrir afhendingu viðurkenninga til íþróttafólks úr Grindavík sem skarað hefur fram úr á liðnu ári. Þann 10. janúar kl. 11:00 verða íþróttafólki viðurkenningar fyrir afrek sín á árinu 2025. 

Athöfnin fer fram í Gjánni og er öllum velkomið að mæta og fagna árangri okkar öfluga íþróttafólks. 

Tilnefningar til íþróttafólks Grindavíkur 2025 voru birtar í desember. Fimm íþróttakonur og fimm íþróttakarlar hafa verið tilnefnd sem íþróttamaður og íþróttakona Grindavíkur 2025. Þrír þjálfarar eru tilnefndir sem þjálfari Grindavíkur og fjögur lið sem íþróttalið Grindavíkur 2025. 

Auk þess verða veittar viðurkenningar fyrir íslands- og bikarmeistaratitla og fyrstu landsleiki.

Sundlaugin og íþróttasalirnir verða opin kl. 12:00-17:00 á laugardaginn og kl. 18:00 tekur Grindavík á móti Aþenu í VÍS bikar kvenna í körfubolta.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. febrúar 2026

Handavinnustund í Grindavík

Fréttir / 2. febrúar 2026

Lokađ fyrir kalt vatn á Bađsvöllum í dag

Fréttir / 23. janúar 2026

Dale Carnegie námskeiđ fyrir fullorđna

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffiđ verđur nćst 12. janúar