Fundur 591

  • Bæjarstjórn
  • 17. desember 2025

591. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 16. desember 2025 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður, Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, aðalmaður.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Birgitta Hrund og Birgitta Rán sátu fundinn í gegnum Teams.

Dagskrá:

1.      Upplýsingagjöf varðandi öryggismál í Grindavík - 2512031

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.

Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður,forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, Birgitta Hrund og Hjálmar.

Lagt fram erindi frá Örugg-verkfræðistofu varðandi upplýsingar sem bæjarbúar fá frá stjórnsýslunni varðandi öryggismál bæjarins.

Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram. Jafnframt óskar bæjarstjórn eftir fundi með Grindavíkurnefndinni vegna erindisins.

2.      Rekstrarkostnaður slökkviliðs Grindavíkur - 2506009

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjonustumiðstöðvar.

Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.

Lagt fram samkomulag um uppgjör á kostnaði vegna reksturs á slökkviliði Grindavíkur á tímabilinu apríl til október 2025.

3.      Rammasamningur - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík - 2511009

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjonustumiðstöðvar.

Til máls tóku: Ásrún, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, Birgitta Hrund, Hallfríður, Guðjón, bæjarstjóri og Hjálmar.

Lagður fram listi umsókna þeirra fyrirtækja sem vilja taka þátt í Rammasamningi - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík. Auk þess lögð fram drög að niðurrifssamningum vegna Mánagerði 2, Mánagötu 19 og Mánagötu 21.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða samninga og felur bæjarstjóra að undirrita þá.

4.      Fjárhagsáætlun HES fyrir árið 2026 - 2512015

Til máls tók: Ásrún.

Fjárhagsáætlun HES fyrir árið 2026 er lögð fram til samþykktar. Fjárhæðir hafa verið færðar inn í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða áætlun.

5.      Fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2026 - 2512014

Til máls tók: Ásrún.

Fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2026 er lögð fram til samþykktar. Fjárhæðir hafa verið færðar inn í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða áætlun.

6.      Fasteignagjöld 2026 - 2506033 Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Tillaga að álagningarreglum fasteignagjalda fyrir árið 2026 er lögð fram til samþykktar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að álagningarreglur fasteignagjalda verði óbreyttar frá fyrra ári nema fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækki úr 0,30% í 0,25%.

7.      Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2026 - 2512030

Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Tillaga að tekjuviðmiðum vegna afsláttar tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi er lögð fram til samþykktar. Lagt er til að tekjuviðmið hækki um 8% frá því sem samþykkt var fyrir árið 2024.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

8.      Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2507023

Til máls tók: Ásrún.

Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2026-2029 er lögð fram til fyrri umræðu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Fundarhlé gert kl. 15:15 - 16:45

9.      Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hjálmar og bæjarstjóri. Fundargerð 989. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 14.11.2025 er lögð fram til kynningar.

10.      Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tók: Ásrún. Fundargerð 990. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 05.12.2025 er lögð fram til kynningar.

11.      Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2501030

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 818. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 10. desember 2025 er lögð fram til kynningar.

12.      Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2025 - 2502026

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 321. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 10.12.2025 er lögð fram til kynningar.

13.      Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð - 2501029

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 574. stjórnarfundar Kölku dags. 29.10.2025 er lögð fram til kynningar.

14.      Bæjarráð Grindavíkur - 1696 - 2511010F

Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

15.      Bæjarráð Grindavíkur - 1697 - 2512002F

Til máls tók: Ásrún. Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

16.      Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 92 - 2512001F

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón, Gunnar Már og Hjálmar.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:50.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 4. febrúar 2026

Fundur 1701

Bæjarstjórn / 27. janúar 2026

Fundur 592

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. janúar 2026

Fundur 93

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689