Fimm íþróttakonur og fimm íþróttakarlar hafa verið tilnefnd sem íþróttamaður og íþróttakona Grindavíkur 2025. Þrír þjálfarar eru tilnefndir sem þjálfari Grindavíkur og fjögur lið sem íþróttalið Grindavíkur 2025. Allar deildir UMFG sem og íþróttafélög með samstarfssamning við Grindavíkurbæ áttu kost á því að tilnefna íþróttafólk, lið og þjálfara úr sínum röðum. Lesa má um þau sem tilnefnd voru hér að neðan.
Valnefnd samanstóð af þessu sinni af fjórum fulltrúum frá Grindavíkurbæ og fjórum úr aðalstjórn UMFG. Fram fór leynileg kosning og verður kjörinu lýst í byrjun janúar.
Tilnefningarnar eru í stafrófsröð:
Alexander Veigar Þorvaldsson, pílukast
Alexander er stigameistari PSÍ 2025 og margfaldur Íslandsmeistari. Hann sýndi styrk sinn bæði heima og erlendis, þar á meðal á heimsmeistaramóti ungmenna, og hefur skýr markmið um að stefna enn hærra.
Helgi Dan Steinsson, golf
Helgi varð klúbbmeistari GG á árinu og sýndi enn á ný að hann er einn af okkar bestu kylfingum. Hann hefur tekið framförum á árinu og er góð fyrirmynd fyrir aðra kylfinga.
Ólafur Ólafsson, körfuknattleikur
Ólafur er burðarás í liði Grindavíkur og dró vagninn þegar mest á reyndi. Hann er góð fyrirmynd sem hefur á krefjandi tímum talað opinskátt um ábyrgð, seiglu og mikilvægi þess að halda fókus þegar á móti blæs.
Rúrik Hreinsson, hestaíþróttir
Rúrik vann til verðlauna á opnum mótum hjá Sóta og Spretti á árinu. Hann er góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur og leggur sig fram um að hvetja og leiðbeina þeim í þjálfun og keppni.
Sölvi Snær Ásgeirsson, knattspyrna
Sölvi kom eins og stormsveipur inn í meistaraflokk á árinu og vakti athygli liða erlendis og var valinn í yngri landslið Íslands. Hann leikur nú fyrir LASK í Austurríki og er óumdeilanlega einn efnilegasti leikmaður landsins.
Dýrleif Arna Guðmundsdóttir, golf
Dýrleif varð klúbbmeistari á sínu fyrsta ári og sýndi að ástríða og vinnusemi þekkja engin aldursmörk. Hún hefur náð ótrúlegum framförum á stuttum tíma og er orðin einn af öflugri kylfingum Grindavíkur.
Emma Fanndal Jónsdóttir, knattspyrna
Emma leiddi sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur til upp um deild í sumar með yfirvegun, styrk og framúrskarandi varnarvinnu. Hún er einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins og sannkallaður leiðtogi.
Ísabella Ósk Sigurðardóttir, körfuknattleikur
Ísabella er lykilleikmaður í liði Grindavíkur, einn besti miðherji landsins og meðal áhrifamestu leikmanna í íslenskum körfubolta. Hún skilar reglulega tvöfaldri tvennu í leik og er fastamaður í landsliðinu.
Lilja Rós Jónsdóttir, hestaíþróttir
Lilja Rós var oft í verðlaunasætum á mótum ársins og náði lágmörkum á Íslandsmót þar sem hún var eini fulltrúi Brimfaxa. Hún er metnaðarfullur knapi með skýr markmið um að bæta sig í þjálfun og keppni.
Steinunn Dagný Ingvarsdóttir, pílukast
Steinunn er stigameistari PSÍ 2025 og margfaldur Íslandsmeistari. Hún lék á heimsmeistaramóti landsliða og var eina konan sem lék í Úrvalsdeildinni í ár. Hún er góð fyrirmynd fyrir aðra iðkendur.
Grindjánar, hestaíþróttir
Grindjánar tóku þátt í Meistaradeild ungmenna þar sem sterkustu knapar landsins keppa. Þau sýndu að samheldni, ástríða og dugnaður geta skilað sér í frábærum árangri.
Karlalið Pílufélags Grindavíkur, pílukast
Karlaliðið Pílufélags Grindavíkur varð Íslandsmeistari félagsliða enn á ný. Styrkur liðsins er ótrúleg samstaða og árangurinn síðustu ár talar sínu máli.
Mfl. karla í körfuknattleik, körfuknattleikur
Meistaraflokkur karla lék til undanúrslita gegn verðandi Íslandsmeisturum síðasta vor og sýndi karakter, kjark og ótrúlega liðheild. Liðið er í dag eitt besta lið landsins.
Mfl. kvenna í knattspyrnu, knattspyrna
Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur tryggði sér sæti í Bestu deild kvenna þrátt fyrir spár um annað í upphafi tímabils. Liðið sannaði að með trú á verkefninu, góðri liðsheild og mikilli seiglu er allt mögulegt.
Gylfi Tryggvason, knattspyrna
Gylfi tók við nýstofnuðu liði og skapaði ósigrandi liðsheild. Hann er leiðtogi sem nær fram því besta í fólkinu sem vinnur með honum og árangurinn er eftir því.
Jóhann Þór Ólafsson, körfuknattleikur
Jóhann Þór er einn fremsti körfuknattleiksþjálfari landsins. Hann hefur leitt meistaraflokk karla síðustu ár og í oddaleik í undanúrslitum í vor. Hann er taktískur, rólegur og ávallt með hjartað á réttum stað.
Pétur Rúðrik Guðmundsson, pílukast
Pétur hefur þjálfað marga af bestu pílukösturum landsins sem þjálfari Grindavíkur og landsliðsins. Hann er mikil fyrirmynd sem hefur átt stóran þátt í því að koma pílukasti á framfæri.