Grindavíkurbćr og Data Dwell í samstarf um nýjan ljósmyndavef

  • Fréttir
  • 10. desember 2025

Grindavíkurbær hefur gengið frá samningi við íslenska nýsköpunarfyrirtækið Data Dwell um þróun og rekstur á nýjum ljósmyndavef sem opnaður verður á árinu 2026. Vefurinn mun hýsa myndefni úr Grindavík, bæði eldri ljósmyndir sem og nýlegar.

Á vefnum verður til að byrja með myndefni í eigu Grindavíkurbæjar. Fljótlega mun almenningi þó gefast kostur á að senda inn ljósmyndir úr Grindavík til varðveislu.

Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, lýsir yfir ánægju með samstarfið:

„Við erum afar ánægð með það frumkvæði sem Data Dwell sýndi þegar þau buðu Grindavíkurbæ þeirra lausn. Ljósmyndir eru mikilvægur hluti af sögu okkar og sjálfsmynd. Nú getum við tryggt að verðmætt myndefni varðveitist á öruggan og aðgengilegan hátt. Við hlökkum til frekara samstarfs og þróunar á þessari lausn í þágu samfélagsins.“

Ólafur Þorkelsson frá Data Dwell segir:

„Við erum stolt af því að vera hluti af þessu mikilvæga verkefni að halda utan um myndefni um sögu Grindavikur og þeim hamförum sem hafa dunið yfir sveitarfélagið. Þessar myndir sem safnað verður saman verða sögulegar ekki bara fyrir Grindavík heldur einnig fyrir landið allt. Data Dwell mun leggja allan metnað í að hrinda þessu verkefni úr vör ásamt Grindvíkingum nær og fær.“

Lausn Data Dwell er þegar í notkun hjá fjölda opinberra aðila og er sérhönnuð til að tryggja örugga skráningu, varðveislu og miðlun myndefnis. Samstarfið felur m.a. í sér að Grindavíkurbær fær aðgang að skýjalausn Data Dwell, með góðu geymslurými, notendavænu viðmóti og faglegri ráðgjöf.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 8. desember 2025

Ađventukaffi í Kvikunni

Fréttir / 5. desember 2025

Samverustundir í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 5. desember 2025

Ný könnun um hagi og áform Grindvíkinga

Fréttir / 26. nóvember 2025

Pálínu-Jólabođ FEB Grindavík

Fréttir / 25. nóvember 2025

Rýmingarflautur prófađar á miđvikudaginn