Lagt til ađ sérreglur gildi um sveitastjórnarkosningar 2026

  • Fréttir
  • 8. desember 2025

Dómsmálaráðuneytið hefur birt áform um breytingar á kosningalögum, sveitarstjórnarlögum og lögum um lögheimili vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í Grindavík vegna jarðhræringa.

Lagt er til að þau sem áttu lögheimili í Grindavík 9. nóvember 2023 en hafa flutt lögheimili sitt, fái val um að kjósa annaðhvort í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem þau búa í núna. Þau sem kjósa Grindavík verða tekin inn á kjörskrá með umsókn til Þjóðskrár Íslands og skal hún berast eigi síðar en 40 dögum fyrir kjördag.

Jafnframt er gert ráð fyrir að kjörgengi haldist í samræmi við þessar reglur út kjörtímabilið, og að tryggt verði að störf nefnda og ráð sveitarfélagsins raskist ekki.

Áformin eru nú til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda eins og áður segir. Þar geta Grindvíkingar lesið nánar um fyrirhugaðar breytingar og sent inn umsagnir. Þetta er því tækifæri fyrir Grindvíkinga til að hafa bein áhrif á hvernig kosningarnar 2026 verða útfærðar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 8. desember 2025

Ađventukaffi í Kvikunni

Fréttir / 5. desember 2025

Samverustundir í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 5. desember 2025

Ný könnun um hagi og áform Grindvíkinga

Fréttir / 26. nóvember 2025

Pálínu-Jólabođ FEB Grindavík

Fréttir / 25. nóvember 2025

Rýmingarflautur prófađar á miđvikudaginn