Nú stendur yfir könnun um málefni Grindvíkinga sem Háskóli Íslands vinnur fyrir Grindavíkurnefnd með aðstoð Maskínu.
Það er mikilvægt fyrir þau sem vinna að málefnum Grindvíkinga og uppbyggingu samfélagsins að vita hvað Grindvíkingar eru að hugsa. Hvernig þeim líður, hvernig þeim gengur og hvers þeir vænta næstu misseri eða ár. Hafa þeir í hyggju að snúa til baka til Grindavíkur á næstunni, eða finnst þeim það ólíklegt? Hvað vegur þyngst í þeim ákvörðunum? Hvernig hefur sú aðstoð sem þeim hefur boðist gagnast þeim? Hvað mætti betur fara? Hvernig hafa börnin það?
Nánari upplýsingar um könnunina má finna á vef Grindavíkurnefndar.