92. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn sem fjarfundur í Teams, miðvikudaginn 3. desember 2025 og hófst hann kl. 12:30.
Fundinn sátu: Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi, Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi, Guðjón Bragason, lögfræðingur, Sigurður A Kristmundsson, hafnarstjóri.
Einnig sátu fundinn: . Fundargerð ritaði: Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. Umsókn um byggingaráform og -leyfi Suðurhóp 2, Hópsskóli - 2510026
Innviðanefnd samþykkti, á 12. fundi innviðanefndar þann 24.nóvember, byggingaráform fyrir styrkingu á Hópsskóla (grundun) og staðfesti að þau væru í samræmi við skipulag. Um var að ræða fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022. Málinu var vísað til byggingarfulltrúa í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Byggingarfulltrúi hefur yfirfarið gögnin. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. reglugerðarinnar hafa verið uppfyllt.
2. Umsókn um byggingaráform og -leyfi Hafnargata 13 Slökkvistöð - 2510027
Innviðanefnd samþykkti, á 12. fundi innviðanefndar þann 24.nóvember, byggingaráform fyrir breytingu á innra rými og starfsmannaaðstöðu, slökkvistöðvar bæjarins, að Hafnargötu 13 og staðfesti að þau væru í samræmi við skipulag. Um var að ræða fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022. Málinu var vísað til byggingarfulltrúa í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Byggingarfulltrúi hefur yfirfarið gögnin. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. reglugerðarinnar hafa verið uppfyllt.
3. Umsókn um byggingaráform og -leyfi fyrir Fálkahlíð 5 - 2512006
Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi, frá LB1 ehf. eiganda Fálkahlíðar 1, 3 og 5, samsett einingahús (e. modular).
Umsóknin er byggð á mati sérfræðinga NTÍ, Verkís, Eflu og aðalhönnuðar húsanna, þar sem talið er að framkvæma þurfi einn eða fleiri eftirfarandi þátta: endurbygging, styrking burðarkerfis, viðgerðir skemmda eða tilfærsla húsa 1 og 5.
Önnur gögn sem liggja fyrir eru minnisblað vegna jarðkönnunar og minnisblað matsmanns bæði unnin fyrir NTÍ.
Afgreiðslu frestað. Lögfræðingi falið að útbúa minnisblað um málið.
4. Umsókn um byggingaráform og -leyfi fyrir Fálkahlíð 1 - 2512004
Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi, frá LB1 ehf. eiganda Fálkahlíðar 1, 3 og 5, samsett einingahús (e. modular).
Umsóknin er byggð á mati sérfræðinga NTÍ, Verkís, Eflu og aðalhönnuðar húsanna, þar sem talið er að framkvæma þurfi einn eða fleiri eftirfarandi þátta: endurbygging, styrking burðarkerfis, viðgerðir skemmda eða tilfærsla húsa 1 og 5.
Önnur gögn sem liggja fyrir eru minnisblað vegna jarðkönnunar og minnisblað matsmanns bæði unnin fyrir NTÍ.
Afgreiðslu frestað. Lögfræðingi falið að útbúa minnisblað um málið.
5. Umsókn um byggingaráform og -leyfi fyrir Fálkahlíð 3 - 2512005
Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi, frá LB1 ehf. eiganda Fálkahlíðar 1, 3 og 5, samsett einingahús (e. modular).
Umsóknin er byggð á mati sérfræðinga NTÍ, Verkís, Eflu og aðalhönnuðar húsanna, þar sem talið er að framkvæma þurfi einn eða fleiri eftirfarandi þátta: endurbygging, styrking burðarkerfis, viðgerðir skemmda eða tilfærsla húsa 1 og 5.
Önnur gögn sem liggja fyrir eru minnisblað vegna jarðkönnunar og minnisblað matsmanns bæði unnin fyrir NTÍ.
Afgreiðslu frestað. Lögfræðingi falið að útbúa minnisblað um málið.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 13:15.