Fundur 12

  • Innviðanefnd
  • 1. desember 2025

12. fundur innviðanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 24. nóvember 2025 og hófst hann kl. 13:00.

Fundinn sátu: Lilja Ósk Sigmarsdóttir, varaformaður, Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Unnar Á. Magnússon, aðalmaður, Páll Jóhann Pálsson, áheyrnarfulltrúi.

Einnig sátu fundinn: Sigurður A Kristmundsson, hafnarstjóri, Sigurður Rúnar Karlsson, veitustjóri, Elísabet Bjarnadóttir, sérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs, Guðjón Bragason, Lögfræðingur, Fannar Jónasson, bæjarstjóri.

Fundargerð ritaði:  Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi.

Aðalmaður Lilja Ósk Sigmarsdóttir sat fundinn á Teams.

Í upphafi fundar óskaði formaður eftir því að mál yrði tekið inn með afbrigðum sem 10. mál, Umsókn um framkvæmdaleyfi - Viðgerð á Njarðvíkuræð HS Orku nr. 2511045.

Dagskrá:

1.      Umsókn um byggingaráform og -leyfi Suðurhóp 2, Hópsskóli - 2510026

Fyrir hönd Grindavíkurbæjar sækir Sigurður Rúnar Karlsson um byggingaráform og -leyfi til að framkvæma jarðfræðilegar styrkingar (grautun) á undirstöðum nýrrar álmu Hópsskóla að Suðurhópi 2. Eftir náttúruhamfarir opnaðist sprunga í klöpp undir mannvirkinu sem hefur valdið því að púði hefur sáldrast niður. Samantekt um forsendur má sjá á s.7 í jarðtækniráðgjöf á minnisblaði Eflu dags. 01.09.2025.

Innviðanefnd samþykkir byggingaráformin og staðfestir að þau séu í samræmi við skipulag. Bæjarráð Grindavíkur tók málið fyrir á fundi nr. 1689 þann 09.09.2025 og hefur nú þegar samþykkt áætlun um viðgerð. Því er um fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar er að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.

Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

2.      Umsókn um byggingaráform og -leyfi Hafnargata 13 Slökkvistöð - 2510027

Fyrir hönd Grindavíkurbæjar sækir Sigurður Rúnar Karlsson um byggingarheimild eða -leyfi fyrir breytingu á innra rými og starfsmannaaðstöðu, slökkvistöðvar bæjarins, að Hafnargötu 13. Breytingin er gerð til að mæta breyttri starfsemi og uppfylla kröfur Vinnueftirlitsins.

Innviðanefnd samþykkir byggingaráformin og staðfestir að þau séu í samræmi við skipulag.

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur nú þegar tekið málið fyrir og samþykkt áformin, það var gert á fundi nr.589 þann 28. október sl. Því er um að ræða fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.

Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.

3.      Fráveita Grindavíkurbæjar - aðgerðaáætlun og áfangaskipting - 2506019

Lögð fram tillaga að uppfærðri áfangaskiptingu vegna uppbyggingar fráveitu, sbr. minnisblað frá Eflu ásamt bréfi til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Tafla á síðu 10 í bréfinu sýnir kostnaðarskiptingu milli ára eftir uppfærslu.

Innviðanefnd gerir ekki athugasemd við breytta áfangaskiptingu og telur hana falla vel að breyttum aðstæðum í rekstri sveitarfélagsins.

4.      Umgengnismál í Grindavík og tillögur að úrbótum - 2511039

Innviðasvið óskar eftir því að nefndin taki afstöðu til tillögu sviðsins um hreinsunarátak í bænum. Undanfarið ár hefur drasl og óreiða aukist verulega í Grindavík. Tilhneiging er til þess að þar sem drasl og óreiða er fyrir hendi versni ástandið frekar en að það skáni af sjálfu sér. Nú er því svo komið að yfirvöld í Grindavík í samstarfi við HES verða að grípa til viðeigandi aðgerða svo að aðstæður versni ekki enn frekar. Bærinn hefur fengið áminningu frá HES um að grípa verði til aðgerða og tilmæli um að tilnefna verði fulltúa frá Grindavíkurbæ sem leiðir verkefnið.

Innviðanefnd tilnefnir Sigurð A. Kristmundsson hafnarstjóra og sviðsstjóra innviðasviðs sem fulltrúa Grindavíkurbæjar í þetta verkefni og sem tengilið við HES.

5.      Rammasamningur - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík - 2511009

Lögð fram til kynningar og umræðu drög að bréfi sem sent verður til eigenda altjónshúsa, ásamt drögum að samningi um niðurrif. Í bréfinu er kynnt það fyrirkomulag sem Grindavíkurbær mun vinna eftir í tengslum við örútboð innan rammasamnings um niðurrif. Mikilvægt er að eigendur altjónshúsa verði vel upplýstir um niðurrifsferlið og einnig fjárhagsleg atriði því tengd.

Innviðanefnd gerir ekki athugasemd við bréf til eigenda altjónshúsa og drög að samningi um niðurrif.

6.      Ósk um að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi vegna aðkomuleiðar að Efrahóp - 2511029

Eigna- og veitustjóri ásamt innviðasviði óska eftir að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi vegna aðkomuleiðar að Efrahópi. Eftir eldgos þann 14. janúar 2024 lokaðist akstursleiðin inn í Efrahóp 16-31 (efri götuna). Vegna náttúruverndarsjónarmiða sbr. umsögn NVS, dags. 22.09.2025, er lagt til að ný akstursleið inn í hverfið liggi austan hverfisins, þ.e. í gegnum Hlíðarhverfi sbr. tillögum hér að neðan og meðf. uppdráttum dags. 20.11.2025.

Tillaga 1 - Ný tenging verður frá Bröttuhlíð og inn núv. íbúðargötu Arnarhlíðar. Kostir: innakstur fyrir báðar Efrahópsgöturnar verða á sama stað og ótengdar áhugaverðum áfangastað ferðamanna en búast má við ásókn ferðamanna vegna nýja hraunsins. Ókostir: vegtengingin liggur samsíða og þverar Víðihlíðarsprunguna.

Tilllaga 2 - Ný tenging fyrir efri götuna verður frá Bröttuhlíð og inn Álftahlíð. Kostir: Víðihlíðarsprunga einungis þveruð. Ókostir: Gatnagerð er ólokið fyrir Álftahlíð. Þar eru takmarkanir á fyrirhuguðum lóðum skv. tillögum sérfæringarteymis.

Báðar tillögur gera ráð fyrir því að innkeyrsla að efri götunni sé frá Hópsbraut og upp Bröttuhlíðina, en í gildandi deiliskipulagi er leyfi fyrir hringtorgi á þeim gatnamótum. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 hefur nú þegar verið gert ráð fyrir þessari framkvæmd.

Innviðanefnd samþykkir að farið verði í breytingu á deiliskipulagi fyrir tillögu 1. Skipulagsfulltrúa falið að hefja ferli við þær skipulagsbreytingar sem þarf til þess að hægt verði að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir nýja akstursleið inn í hverfið og að þær verði grenndarkynntar.

7.      Tillaga að endurnýtingu jarðefna - 2511028

Lögð er fram tillaga að endurnýtingu jarðvegsefna sem falla kunna til við m.a. áframhaldandi sprunguviðgerðir og áformað niðurrif húsa. Bærinn hefur starfsleyfi fyrir millilager í Eldvarpahraunsnámu þar sem geyma má m.a. jarðvegsefni sem þarf að endurnýta síðar. Eigna- og veitustjóri ásamt innviðasviði óska eftir því að stytta ferlið og minnka þar með kolefnissporið með því að nýta efnið til landmótunar. Sveitarfélagið mun sjá um yfirborðsfrágang eftir að efni hefur verið sett á rétta staði. Áform hafa verið borin undir sprunguviðgerðarteymið.

Innviðanefnd tekur undir að mikilvægt sé að minnka kolefnissporið og samþykkir að nýta jarðefni í landmótun.

Þar sem manir á geymslusvæði og við Sundabraut eru í samræmi við skipulag er til staðar leyfi til þess að bæta í þær en nefndin minnir á að sækja þarf um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdunum. Það sama á við um svæðið syðst í Hlíðarhverfi en að mati nefndar telst íborningur á svæðið hluti af frágangi hverfisins og í samræmi við skipulag.

Varðandi uppfyllingar sunnan Vesturbrautar vegna sigs og framlengingu manar norðan spennistöðvar HS Veitna telur nefndin að framkvæmdirnar kalli ekki eftir gerð deiliskipulags og nýta beri 8.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, þá mun innviðanefnd láta fara fram grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en ákvörðun um veitingu leyfis er tekin. Sækja þarf um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdunum.

Nefndin telur að gera þurfi breytingu á skipulagi vegna hóls í Víðihlíðarhverfi. Minnt er á að senda þarf inn umsókn um breytingu á skipulagi.

8.      Umsókn um skipulagsbreytingu - deiliskipulag Svartsengi Northernlight inn - 2511011

Flatabrim ehf. sækir um að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi Svartsengis (verslunar- og þjónustusvæði) í tengslum við stækkun Northern Light Inn. Í tillögu sem nú þegar hefur verið gerð segir að breytingin feli í sér stækkun byggingarreits á Norðurljósavegi 1, úr 8700fm í 15200fm sbr. meðfylgjandi tillögu dagsett 13.11.2025.

Innviðanefnd samþykkir að um óverulega deiliskipulagsbreytingu sé að ræða og að málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en bendir á að ekki sé aðeins um að ræða stækkun á byggingarreit heldur líka aukningu á byggingarmagni úr 3000fm í 5500fm. Bent er á að skjáskot frá árinu 2016 er vitlaust á uppdrætti. Nefndin samþykkir skipulagið með fyrirvara um að engar athugasemdir berist á kynningartíma grenndarkynningar og að skipulag hafi verið lagfært.

Um fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar er að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna áformin fyrir lóðarhöfum aðliggjandi lóða, þ.e. Bláa Lóninu og HS Orku og í framhaldi að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.

Innviðanefnd vekur athygli umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.

9.      Umsagnarbeiðni - Aðalskipulagsbreyting vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar - 2511025

Reykjanesbær óskar eftir umsögn á lýsingu aðalskipulagsbreytingar vegna fyrirhugaðrar tvöföldunar Reykjanesbrautar. Innviðanefnd gerir ekki athugasemd við skipulagslýsinguna.

10.      Umsókn um framkvæmdaleyfi - Viðgerð á Njarðvíkuræð HS Orku - 2511045

Fyrir hönd HS Orku sækir Axel Viðarsson um framkvæmdaleyfi fyrir viðgerð á heitavatnslögn (Njarðvíkuræð) sem liggur undir nýju hrauni í nágrenni Svartsengis. Framkvæmdasvæðið er um 300m að lengd en raska þarf hrauni sem liggur þétt upp við lagnaslóð sem endurgerð var eftir að hraun rann þar yfir.

Almennt er ekki þörf á framkvæmdaleyfi í viðgerðartilvikum veitukerfa enda lagnaleiðir skilgreindar og samþykktar í aðalskipulagi. Erindið er þó á borði innviðanefndar þar sem náttúruverndarstofnun bendir á að skylda sé að afla leyfis vegna röskunar á svæðum sem njóta sérstakrar verndar skv. 61.gr. náttúruverndarlaga og telst nýtt hraun þar undir. Meta skuli hvort brýn þörf sé á framkvæmdinni og þar með raska hrauni eða hvort aðrir valkostir séu í boði. Senda þarf stofnuninni útgefið leyfi.

Innviðanefnd metur viðgerðina mjög brýna. Nýr slóði liggur ofan á nýju hrauni meðfram lögninni. Reynt var að hylja lögnina með jarðvegi til verndar gegn hrauni og er það lag því á milli lagnarinnar og hraunsins. Finna þarf staðsetningu skemmdarinnar og grafa þar niður, ekki er um að ræða aðra valkosti. Eins og fram kemur í gögnum framkvæmdaraðila flytur lögnin varma til íbúa Suðurnesja og án viðgerðar er hætta á verulegri röskun á afhendingu á heitu vatni.

Byggt á þessum rökum og gögnum umsóknaraðila er skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi sbr. 13.gr. skipulagslaga og skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Nefndin setur skilyrði um vandað verklag og að hraun sem grafið er frá sé sett til hliðar og notað í frágang.

Um fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar er að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1., 2.gr. lið 8 í bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:30.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689

Bæjarráð / 2. september 2025

Fundur 1688

Bæjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bæjarráð / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bæjarráð / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bæjarráð / 2. júlí 2025

Fundur 1685