Konukvöld KVAN fyrir konur úr Grindavík

  • Fréttir
  • 16. nóvember 2025

Segðu bless við jólastressið og hafðu gaman á konukvöldi KVAN!

KVAN býður konum frá Grindavík á kvennakvöld þriðjudaginn 9. desember í Safnaðarheimili Kópavogskirkju.

Kvöld fullt af gleði, orku, hlátri og samveru – með skemmtilegum fyrirlestrum, fyrirtækjakynningum og frábærum vinningum í happdrætti!

Húsið opnar kl. 19:00, ýmis fyrirtæki verða með vörukynningar og smakk. Fordrykkur og piparkökur.

Kl. 20:00 hefst uppbyggileg og skemmtileg dagskrá.

Veislustjóri kvöldsins er Anna Steinsen ásamt frábærum fyrirlesurum og gleðigjöfum sem verða kynnt til leiks síðar.

Konukvöld KVAN hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin og það hefur fyllst á viðburðina á örskömmum tíma.

Tryggðu þér sæti strax með því að skrá þig hér. 

Athugið – Þó svo nokkrar konur ætli að mæta saman þá þarf að skrá hverja og eina á viðburðinn.

Hlökkum til að taka á móti ykkur, öll velkomin!


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 8. desember 2025

Ađventukaffi í Kvikunni

Fréttir / 5. desember 2025

Samverustundir í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 5. desember 2025

Ný könnun um hagi og áform Grindvíkinga

Fréttir / 26. nóvember 2025

Pálínu-Jólabođ FEB Grindavík

Fréttir / 25. nóvember 2025

Rýmingarflautur prófađar á miđvikudaginn