Upphafsfundur verkefnisins Grindavík – Saman í sókn

  • Fréttir
  • 14. nóvember 2025

Í gær, 12. nóvember, hófst formlega verkefnið Grindavík – Saman í sókn með öflugum staðarfundi í Gjánni þar sem stjórnendur og lykilstarfsmenn frá 21 fyrirtæki í Grindavík komu saman til að hefja sameiginlegt starf í átt að endurreisn, eflingu og framtíðarmótun atvinnulífs bæjarins. Verkefnið stendur yfir frá nóvember 2025 til febrúar 2026.

Verkefnið er á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, unnið í nánu samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og Grindavíkurbæ. Íslenski ferðaklasinn leiðir framkvæmd verkefnisins í samstarfi við marga góða aðila, s.s Sjávarklasann, Íslandsstofu og fleiri. Verkefnið er fjármagnað úr sjóði Byggðaáætlunar 2022-2036.

Sterkur vilji, samstaða og framtíðarsýn

Á fundinum ríkti sterkur andi samstarfs og bjartsýni á framtíðina. Þátttakendur lýstu sameiginlegum vilja til að endurbyggja samfélagið, skapa ný tækifæri og efla atvinnulíf Grindavíkur með framsýni, seiglu og nýsköpun að leiðarljósi.

Í umræðum kom fram skýr þörf á að byggja á þeim sterku gildum sem Grindavík hefur löngum staðið fyrir. Jafnframt var bent á mikilvægi þess að auka skilning þeirra sem starfa utan svæðisins á sérstöðu Grindavíkur og tryggja að þau tækifæri sem felast í sameiginlegri nálgun atvinnulífsins verði nýtt til fulls.

Sérstaka athygli vakti þátttaka nýs fyrirtækis í sælgætisframleiðslu sem nýverið hefur hafið starfsemi í Grindavík – skýr vísbending um trú á framtíðinni og þann kraft sem býr í samfélaginu

Sameiginlegur vettvangur atvinnulífsins

Verkefnið Grindavík – Saman í sókn er sameiginlegur vettvangur fyrirtækja í Grindavík til að:

  • efla rekstrarhæfni fyrirtækja eftir áföll,
  • auka verðmætasköpun og þróa ný verkefni,
  • styðja við uppbyggingu bæjarins til framtíðar,
  • styrkja tengsl og samvinnu ólíkra atvinnugreina.

Sérstök áhersla er lögð á ferðaþjónustu, bláa hagkerfið, þjónustu, skapandi greinar og iðnað – stoðir sem saman endurspegla fjölbreytni og styrk atvinnulífs Grindavíkur.

Fundarröð og vinnustofur

Fundurinn í Gjánni markaði upphaf að sex vinnustofulotum þar sem fyrirtækin taka þátt í samræðu, greiningu og framtíðarmótun á grundvelli aðferða samkeppnishæfni og klasasamstarfs.

Markmiðið er að kortleggja tækifæri, greina þarfir fyrirtækja og móta sameiginlega sýn til næstu ára.

Hvaða sögu vilja Grindvíkingar segja? Sú vinna verður leiðarljós áframhaldandi uppbyggingar og ímyndarvinnu bæjarins. 

Þátttakendur í Grindavík – Saman í sókn

  • Converted Water Tower
  • Discover Grindavík
  • Fishhouse
  • Fisktækniskóli Íslands
  • Fjórhjólaævintýri ehf
  • Gistihús Grindavíkur ehf
  • Grindavík Seafood ehf
  • Grindavíkurbær
  • Grindin ehf
  • Guðlaugsson ehf
  • Hárhornið
  • Hérastubbur
  • HH smíði
  • Hótel Grindavík
  • Neskja ehf.
  • PGV Framtíðarform ehf
  • Rúnar málari
  • Sæbýli hf.
  • Sólskip ehf
  • Vélsmiðja Grindavíkur ehf
  • VIGT
  • Vísir ehf.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. desember 2025

Firmamót knattspyrnudeildar UMFG

Fréttir / 5. desember 2025

Samverustundir í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 26. nóvember 2025

Pálínu-Jólabođ FEB Grindavík

Fréttir / 21. nóvember 2025

Fjörugur föstudagur - Dagskrá

Fréttir / 16. nóvember 2025

Konukvöld KVAN fyrir konur úr Grindavík

Fréttir / 14. nóvember 2025

Niđurrif altjónshúsa í Grindavík

Fréttir / 14. nóvember 2025

Grindavík Committee Announcement

Fréttir / 11. nóvember 2025

Jólasamverustund í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 11. nóvember 2025

33 úr Grindavík fengu styrk úr Sóknarsjóđi

Fréttir / 31. október 2025

Allra heilagra messa í Grindavíkurkirkju