1694. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 11. nóvember 2025 og hófst hann kl. 14:00.
Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Inga Fanney sat fundinn í Teams.
Dagskrá:
1. Rammasamningur - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík - 2511009
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams)
Lagt fram minnisblað "Undirbúningar niðurrifs altjónseigna í Grindavík" dags. 11. nóv. 2025 ásamt drögum að útboðslýsingu.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa útboð á rammasamningi vegna niðurrifs altjónshúsa skv. útboðsskilmálum.
2. Skil á lóð - Staðarsund 3 - 2506008
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi (Teams).
Bæjarráð samþykkir framkomna beiðni um aflýsingu á lóðarleigusamningi og þar með skil á lóð og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
3. Skil á lóð - Melhólabraut 4, Orf Líftækni - 2511007
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi (Teams).
Bæjarráð samþykkir framkomna beiðni um aflýsingu á lóðarleigusamningi og þar með skil á lóð og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
4. Rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæsla í bænum - 2508009
Lagður fram samstarfssamningur um rekstur slökkviliðs Grindavíkur ásamt viðaukum.
5. Íþróttafólk Grindavíkur 2025 - 2510023
Samfélagsnefnd leggur til að horfið verður til þess fyrirkomulags sem var við lýði fyrir rýmingu við val á íþróttafólki Grindavíkur. Lagt er til að átta aðilar sjái um valið í stað tíu áður.
Bæjarráð samþykkir tillögu samfélagsnefndar.
6. Sóknarsjóður til stuðnings lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Grindavík - 2509023
Lögð fram bókun Stjórnar Byggðastofnunar en þar kemur fram að samþykktir hafa veriö styrkir úr Sóknarsjóði fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík, alls 130,4 millj. kr.
7. Samkomulag um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag sveitarfélagsins - 2402116
Lögð fram bókun ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna samkomulags innviðaráðherra og Grindavíkurbæjar þar sem mælt er með 600 millj. kr. framlagi til Grindavíkurbæjar.
Hallfríður vék af fundi kl. 15:50
8. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2507023
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (Teams), sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, hafnarstjóri, launafulltrúi og Gunnar Már.
Farið yfir mögulegar forsendur vegna rekstrar Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2026.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:30.