89. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn sem fjarfundur í Teams, mánudaginn 21. júlí 2025 og hófst hann kl. 09:30.
Fundinn sátu: Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi, Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn: . Fundargerð ritaði: Elísabet Bjarnadóttir, Skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Laut 1 - 2506007
Fyrir hönd Grindavíkurbæjar sækir Sigurður Karlsson um byggingarleyfi fyrir breytingu á burðarvirki á súlum við leikskólann Laut. Sótt er um að setja stálsúlur í stað steyptra súlna ásamt nýjum undirstöðum samkvæmt teikningu RISS verkfræðistofu, dags. 30.05.2025.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m.s.br. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu reglugerðar hafa verið uppfyllt.
2. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Bláa lónið hreinsistöð - 2505042
Fyrir hönd Eldvarpa ehf. óskar Eva Dís Þórðardóttir eftir byggingarleyfi fyrir uppsetningu hreinsistöðvar hjá Bláa lóninu. Fyrir liggur afstaða bæjarráðs sem hélt fund 18. júní sl. og metur áformin í samræmi við skipulag svæðisins.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m.s.br. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu reglugerðar hafa verið uppfyllt
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:45.