87. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn sem fjarfundur í Teams, föstudaginn 7. mars 2025 og hófst hann kl. 11:00.
Fundinn sátu: Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi, Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi, Guðjón Bragason, lögfræðingur.
Einnig sátu fundinn: .
Fundargerð ritaði: Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Vatnsveitu Grindavíkurvegur 1 - 2503011
Fyrir hönd Grindavíkurbæjar sækir Sigurður Rúnar Karlsson, eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar um byggingarleyfi fyrir því að reisa vatnsmóttökustöð á L238870. Um er að ræða steypt mannvirki sem er að mestu niðurgrafið. Vatnsveitustöð mun stýra vatnsrennsli og þrýstingi til Grindavíkur og leysa af núverandi bráðabirgðaaðgerð eftir að Melhólsstöð fór undir hraun og varð óstarfhæf.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m.s.br. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu reglugerðar hafa verið uppfyllt.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:20.