1692. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 14. október 2025 og hófst hann kl. 13:30.
Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. I upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem fyrsta mál: 2510014 Leiga íbúða til UMFG Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. Leiga íbúða til UMFG - 2510014
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lögð fram beiðni um að Grindavíkurbær leggi til íbúðir í þágu endurkomu körfuknattleiksliða UMFG til Grindavíkur.
Bæjarráð samþykkir erindið í ljósi þeirra aðstæðna sem eru nú í dag og gerir ráð fyrir að leigusamningar verði út keppnistímabilið.
2. Grindavík næstu skref í endurreisn - Umræðuskjal Grindavíkurnefndar - 2510008
Lagt fram umræðuskjal Grindavíkurnefndar "Grindavík-næstu skref í endurreisn" sem er í samráðsgátt stjórnvalda.
Bæjarráð hvetur Grindvíkinga nær og fjær til að kynna sér umræðuskjalið og lýsa sinni afstöðu til þeirra spurninga sem þar eru settar fram. Forsenda þess að samráðsferlið skili tilætluðum árangri er góð þátttaka íbúa.
3. Reykjanesfólkvangur - 2510009
Í tillögu sem borist hefur frá Hafnarfjarðarbæ er gert ráð fyrir að kostnaður vegna landvörslu í Reykjanesfólkvangi skiptist eftir íbúafjölda.
Bæjarráð fellst á þá kostnaðarskiptingu fyrir árið 2025.
4. Sótt um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar - 2510005
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir sem snúa að öryggi ferðamanna, náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og -leiða, einnig undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
6. Aðalfundur Fisktækniskóla Íslands 2025 - 2509040
Fundurinn fer fram 15. október 2025 og hefst kl. 16:15.
Bæjarráð samþykkir að Fannar Jónasson, bæjarstjóri, fari með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.
Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi aðalmann og varamann í stjórn Fisktækniskólans:
Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður
Fannar Jónasson, varamaður
7. Grindavíkurbær - Íbúaskrá - 2510002
Lagt fram yfirlit um stöðu íbúaskrár í nóvember 2023 og 30. september 2025 ásamt breytingum þar á milli.
8. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2507023
Lögð fram kynning vegna sviðsmyndagreiningar rekstar Grindavíkurbæjar fyrir árin 2025-2030.
5. Ályktun samþykkt á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands 2025 - 2509033
Lögð fram ályktun af aðalfundi Skógræktarfélags Íslands sem haldinn var dagana 29.-31. ágúst sl.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 15:05.