Fundur 588

  • Bćjarstjórn
  • 2. október 2025

588. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 30. september 2025 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Unnar Á Magnússon, varamaður, Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, aðalmaður.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. Hjálmar sat fundinn í gegnum Teams.

Dagskrá:

1.      Umsókn um byggingarleyfi fyrir dæluhús og spennistöð í Svartsengi Orkubraut 3 - 2509027

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar.

Til máls tók: Ásrún.

HS Orka sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu 50 fm dælustöðvar í Svartsengi og spennistöð <9fm. Byggingin er partur af framkvæmdaleyfi (málsnr.2411030) fyrir lagningu affalslagnar frá Svartsengi til Arfadalsvíkur. Dælustöðin sem verður staðsett við enda affalsskurðarins frá orkuverinu er með innbygðar dælur og verður niðurgrafin, sbr. afstöðumynd dags.25.7.2025.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að veita byggingaleyfið. Byggingaleyfið verður gefið út þegar byggingafulltrúi hefur fengið öll tilskilin gögn.

2.      Framkvæmdir við klæðningu á Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur) - 2209068

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar.

Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.

Til að klára áfanga 2 og byrja á áfanga 3 er lögð fram viðaukabeiðni að fjárhæð 48 milljónir króna sem lagt er til að verði fjármagnaður með lækkun á eftirfarandi verkefnum:

  • Gatnakerfi, gangbrautir og stígar - lýsingar: 10 m.kr.
  • Félagsaðstaða eldri borgara - frágangur utanhúss: 35 m.kr
  • Ásabraut, tónskóli og bókasafn - þakdúkur: 3 m.kr.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.

3.      Ungmennaráð 2025-2026 - 2509047

Til máls tóku: Ásrún og Gunnar Már.

Lagður fram listi yfir fulltrúa í ungmennaráði 2025-2026.

Bæjarstjórn staðfestir listann.

Ánægjulegt er að sjá hversu mörg ungmenni eru tilbúin til að vinna að hag og uppbyggingu Grindavíkur til framtíðar. Bæjarstjórn hlakkar til samstarfs við ungmennaráð.

4.      Erindi NTÍ er varða byggingar sem reistar eru á svæðum náttúruhamfara - 2509026

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar.

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Guðjón, Birgitta Hrund, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, Gunnar Már og bæjarstjóri.

Lagt fram bréf frá NTÍ, dags. 10. september 2025, um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrirfram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskýldar hjá NTÍ.

5.      Rekstur Grindavíkurbæjar - sviðsmyndir til 2030 - 2509046

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Gunnar Már, Unnar, Inga Fanney og Hjálmar.

Lögð fram til kynningar spá um rekstur og sjóðstreymi Grindavíkurbæjar árin 2025-2030.

6.      Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 983. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 29.08.2025 er lögð fram til kynningar.

7.      Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 984. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 12.09.2025 er lögð fram til kynningar.

8.      Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2501030

Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður, Birgitta Hrund, Guðjón, Unnar, Gunnar Már og Guðjón.

Fundargerð 815. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 10. september 2025 er lögð fram til kynningar. Einnig breytingartillögur á samþykktum S.S.S. (vegna aðalfundar 2025)

9.      Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2025 - 2502026

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Unnar og Guðjón.

Fundargerð 319. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 27.08.2025 er lögð fram til kynningar.

10.      Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð - 2501029

Til máls tóku: Ásrún og Inga Fanney.

Fundargerð 571. fundar Kölku dags. 12.08.2025 er lögð fram til kynningar.

11.      Bæjarráð Grindavíkur - 1688 - 2509001F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

12.      Bæjarráð Grindavíkur - 1689 - 2509003F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

13.      Bæjarráð Grindavíkur - 1690 - 2509006F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

14.      Bæjarráð Grindavíkur - 1691 - 2509008F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

15.      Innviðanefnd - 10 - 2509002F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:50.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarráđ / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiđslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bćjarráđ / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviđanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bćjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bćjarráđ / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bćjarráđ / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiđslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiđslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiđslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiđslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bćjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bćjarráđ / 21. október 2025

Fundur 1693

Bćjarráđ / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviđanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bćjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bćjarráđ / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviđanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviđanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bćjarráđ / 9. september 2025

Fundur 1689

Bćjarráđ / 2. september 2025

Fundur 1688

Bćjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bćjarráđ / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bćjarráđ / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bćjarráđ / 2. júlí 2025

Fundur 1685

Bćjarráđ / 18. júní 2025

Fundur 1684

Afgreiđslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 87

Bćjarráđ / 3. júní 2025

Fundur 1683

Bćjarstjórn / 27. maí 2025

Fundur 586

Bćjarstjórn / 20. maí 2025

Fundur 585