Fundur 1691

  • Bæjarráð
  • 24. september 2025

1691. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 23. september 2025 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. Hjálmar Hallgrímsson sat fundinn í gegnum Teams.

Dagskrá:

1.      Framkvæmdir við klæðningu á Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur) - 2209068

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og Grettir Haraldsson frá Verkvörðu.

Lagt fram minnisblað um verkstöðu klæðningar grunnskólans við Ásabraut. Til að klára áfanga 2 og byrja á áfanga 3 er lögð fram viðaukabeiðni að fjárhæð 48 milljónir króna sem lagt er til að verði fjármagnaður með lækkun á eftirfarandi verkefnum:

  • Gatnakerfi og stígar ? lýsingar 10 m.kr.
  • Félagsaðstaða eldri borgara - frágangur utanhúss 35 m.kr
  • Ásabraut, tónskóli og bókasafn ? þakdúkur 3 m.kr.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.

2.      Sala útistofur við Ásabraut 2 - 2509025

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.

Lagt fram minnisblað um mögulega sölu á útistofum við grunnskólann við Ásabraut ásamt verðmati frá fasteignasala.

Bæjarráð samþykkir að auglýsa útistofurnar til sölu og felur Forstöðumanni þjónustumiðstöðvar að vinna málið áfram.

3.      Styrkir til Grindavíkurbæjar vegna uppbyggingar samfélagsins - 2411001

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Samantekt styrkumsókna í sjóðinn Þrótt Grindavíkinga á vegum Rauða krossins á Íslandi er lögð fram til kynningar.

4.      Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2026 - 2508029

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Lögð fram drög að styrktarsamningi við UMFG árið 2026.

Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.

5.      Spjallbekkur við Kvikuna - 2509029

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Kvenfélag Grindavíkur óskar eftir að fá að gefa Grindavíkurbæ spjallbekk í tilefni af viku einmannaleikans. Bekkurinn verður afhentur Grindavíkurbæ miðvikudaginn 8. október kl. 10:00.

Bæjarráð þakkar höfðinglega gjöf.

6.      Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs til Grindavíkur 2025 - 2410008

Lagt fram erindi til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga vegna greiðslu á 600 m.kr. sérstöku framlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:30.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689

Bæjarráð / 2. september 2025

Fundur 1688

Bæjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bæjarráð / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bæjarráð / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bæjarráð / 2. júlí 2025

Fundur 1685

Bæjarráð / 18. júní 2025

Fundur 1684

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 87

Bæjarráð / 3. júní 2025

Fundur 1683

Bæjarstjórn / 27. maí 2025

Fundur 586

Bæjarstjórn / 20. maí 2025

Fundur 585