„Verum stolt af ţví sem viđ erum og höfum byggt upp“

  • Fréttir
  • 11. september 2025

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Góðan daginn Grindvíkingur ræðir Guðfinna Magnúsdóttir, ljósmyndari, einn af stofnendum hönnunarhússins VIGT og stjórnarkona í Járngerði, um æskuárin í Grindavík, áhrif samfélagsins á sköpunargleðina og það hvernig fjölskyldurekstur hefur orðið að lifandi hluta af bæjarmenningunni.

Lærði ung kennitölu Grindarinnar

Í viðtalinu segir Guðfinna m.a. frá því hvernig bernskan í Efstahrauninu, þar sem frjálsræði, samkennd og leikur mótuðu dagana, hafi lagt grunn að þeirri sýn sem hún fylgir í dag, þ.e. að bera virðingu fyrir handbragði og efni.

Æskuheimilið hafi stundum verið skrifstofa. Þar var m.a. rætt um byggingar, efnisval og hönnun yfir hádegismatnum. „Þetta var góður skóli,“ segir hún. Þar lærði hún að bera virðingu fyrir verki, skila vel unnu starfi og meta það sem aðrir leggja hönd á.

Snemma ákveðin í því að verða ljósmyndari

Fyrstu myndavélina keypti Guðfinna á Kanarí þegar hún var í 9. bekk. Fljótlega ákvað hún að þetta væri eitthvað sem hún vildi leggja fyrir sig.

Hún rifjar upp að ljósmyndir hafi verið það fyrsta sem hún sótti í verðmætabjörgun í nóvember 2023. „Það staðfesti fyrir mér hversu dýrmætt það er að varðveita augnablikið, að myndir geymi minningar sem annars gætu horfið.“

Áhersla á náttúru, uppruna og menningu Grindavíkur

Hönnunarhúsið VIGT var stofnað árið 2012 af Guðfinnu, móður hennar og systrum. Nafnið vísar til gamla hafnavigtarhússins í Grindavík og undirstrikar tengslin við staðinn. Frá upphafi hefur fyrirtækið einblínt á að skapa hluti og húsgögn sem endurspegla náttúruna, uppruna og menningu Grindavíkur.

„Okkur fannst mikilvægt að vörurnar okkar væru ekki bara fallegar, heldur einnig bundnar staðnum og sögunni,“ segir Guðfinna. „Við vildum að fólk fyndi fyrir jarðtengingu í því sem það tekur með sér heim.“

Nýlega vann VIGT með Bláa lóninu að hönnun maskastands fyrir 30 ára afmæli Blue Lagoon Skincare, verkefni sem Guðfinna segir hafa verið sérstaklega dýrmætt.

Áföll og nýjar leiðir eftir rýminguna

Rýming Grindavíkur setti reksturinn í uppnám. Versluninni var lokað tímabundið og fjölskyldan þurfti að endurskipuleggja starfsemina. „Við áttum okkur strax á því að ekkert yrði aftur eins,“ segir Guðfinna. „En það þýðir ekki að framtíðin verði verri, það þarf bara að breyta og finna nýjar leiðir.“

Í dag er verkstæðið starfrækt á ný í Grindavík, vefverslunin í fullum gangi, verslunin í Grindavík opin eftir samkomulagi og hugmyndavinnan heldur áfram.

Mikilvægt að standa vörð um samfélagið

Guðfinna situr í stjórn Járngerðar, nýrra hagsmunasamtaka Grindvíkinga, sem hafa það að markmiði að styðja við uppbyggingu bæjarins. „Það er mikilvægt að við stöndum vörð um samfélagið, sama hvar við búum,“ segir hún og leggur áherslu á að segja sögu Grindavíkur á þann hátt að hún lifi um ókomna tíð.

Samtökin héldu vinnustofu í maí þar sem fjöldi Grindvíkinga lagði sitt af mörkum við að móta aðgerðaáætlun. Þar var rætt um hvernig tryggja megi að samfélagið verði bæði sjálfbært og aðlaðandi fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti þegar bærinn byggist upp á ný.

Þrátt fyrir áföll er hún bjartsýn. Hún telur að VIGT og Grindin geti átt mikilvægan þátt í því að endurvekja menningu og atvinnulíf bæjarins, og leggur áherslu á að hvert skref skipti máli. „Við erum tilbúnar að leggja okkar af mörkum og taka litlu skrefin sem þarf til að byggja ofan á það sem var,“ segir hún.

Skilaboð til Grindvíkinga

Í lok viðtalsins sendir hún Grindvíkingum einföld skilaboð:

„Verum stolt af því sem við erum og höfum byggt upp, þakklát fyrir samfélagið okkar. Þá verður allt í lagi.“

Þátturinn er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Hægt er að hlusta á þáttinn á Spotify hér.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 24. febrúar 2026

Bćjarstjórnarfundur 26. febrúar 2026

Fréttir / 23. febrúar 2026

Ásrún í milliliđalausu spjalli

Fréttir / 16. febrúar 2026

Myndamorgunn í Kvikunni

Fréttir / 5. febrúar 2026

Handavinnustund í Grindavík

Fréttir / 2. febrúar 2026

Lokađ fyrir kalt vatn á Bađsvöllum í dag

Fréttir / 29. janúar 2026

Tjónamati í Grindavík ađ mestu lokiđ