1689. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 9. september 2025 og hófst hann kl. 14:00.
Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur. Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Hópsskóli Viðbygging staða eftir náttúruhamfarir - 2509008
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og skipulagsfulltrúi. Frá Eflu: Jón Haukur Steingrímsson og frá Ísor: Ögmundur Erlendsson.
Lögð fram minnisblöð um skemmdir og mögulegar viðgerðir á viðbyggingu Hópsskóla.
Með vísun til fyrirliggjandi gagna um kostnað við viðgerð á viðbyggingu við Hópsskóla fellst bæjarráð á áætlun um viðgerð. Áætlaður viðgerðarkostnaður á árinu 2025 er innan fjárheimilda í fjárhagsáætlun.
2. Sprungur og byggðarþróun í Grindavík - 2509014
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og skipulagsfulltrúi. Frá Eflu: Jón Haukur Steingrímsson og frá Ísor: Ögmundur Erlendsson.
Á undanförnum mánuðum hefur farið fram kortlagning á sprungukerfum í Grindavík með tilliti til byggðarþróunar bæjarins. Í þessari vinnu hafa lóðir og opin svæði verið flokkuð eftir umfangi sprungna sem liggja um svæðin. Ögmundur og Jón Haukur kynntu vinnu sérfræðingahópsins.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með kynninguna en er meðvitað um að verkefnið er ennþá á vinnslustigi. Jafnframt lýsir bæjarráð vilja til þess að almenn kynning fyrir íbúa á verkefninu fari fram á næstu vikum.
3. Endurskoðun aðalskipulags 2024 - 2412019
Vísað er til bókunar vegna máls 2. Sprungur og byggðaþróun í Grindavík.
4. Rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæsla í bænum - 2508009
Lögð fram umsögn Grindavíkurbæjar vegna reksturs slökkviliðs.
Bæjarráð tekur undir þær áherslur sem fram koma í umsögninni og felur bæjarstjóra að vinna áfram að lausn málsins.
5. Áform Þórkötlu um framlengingu gistingar í Grindavík - 2509007
Bæjarráð telur dvalarsamninga vera mikilvægt úrræði sem er til þess fallið að auðvelda þeim sem nýta úrræðið að halda tengslum við Grindavík. Úrræðið er þannig mikilvægur þáttur í að stuðla að endurreisn samfélagsins í Grindavík þegar jarðhræringunum á Reykjanesi lýkur.
Bæjarráð telur liggja skýrt fyrir að hollvinir sem gert hafa dvalarsamning bíða niðurstöðu um framlengingu þessa úrræðis og er því mikilvægt að sem fyrst verði tekin endanleg ákvörðun um að dvöl verði áfram leyfð í umræddu húsnæði. Í erindinu kemur fram að framlenging dvalarsamninga geti miðast við 3-6 mánuði, þ.e. á tímabilinu 1. október til 31. mars.
Bæjarráð bendir á að páskar eru á næsta ári í fyrstu viku apríl. Æskilegt væri að gildistími dvalarsamninga nái því að lágmarki til 1. maí 2026. Einnig leggur bæjarráð áherslu á að ákvörðun um að bjóða upp á leigusamninga í stað dvalarsamninga liggi tímanlega fyrir á næsta ári, til að veita hollvinum sem bestan fyrirsjáanleika.
6. Aðgerðaáætlun, framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavík, vegna fræðslumála og samþættrar þjónustu við börn skólaárið 2025-2026 - 2508023
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lögð fram drög að umsögn um aðgerðaáætlun um fræðslumál.
Bæjarráð samþykkir umsögnina. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir við framkvæmdanefndina.
7. Erindisbréf ungmennaráðs Grindavíkurbæjar - 2509012
Drög að erindisbréfi ungmennaráðs Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð staðfestir erindisbréfið.
8. Styrkbeiðni vegna íþróttaráðstefnu Suðurnesja - 2509013
Lögð fram styrkbeiðni frá Íþróttabandalagi Suðurnesja vegna íþróttaráðstefnu sem fyrirhuguð er 17. september n.k. þar sem íþróttamál á Suðurnesjum í heild sinni verða til umræðu.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðnina.
9. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2507023
Lögð fram launaáætlun vegna fjárhagsáætlunar 2026 ásamt drögum að tímaáætlun fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2026-2029.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:25.