Fundur 587

  • Bćjarstjórn
  • 27. ágúst 2025

587. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 26. ágúst 2025 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður, Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, aðalmaður.

Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Í upphafi fundar óskar forseti eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem fyrsta mál: 2508023: Aðgerðaráætlun, framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavík, vegna fræðslumála og samþættrar þjónustu við börn skólaárið 2025-2026.

Samþykkt samhljóða.

Dagskrá:

1.      Aðgerðaáætlun, framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavík, vegna fræðslumála og samþættrar þjónustu við börn skólaárið 2025-2026 - 2508023

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, Guðjón, Gunnar Már, Inga Fanney, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Aðgerðaáætlun framkvæmdanefndar er lögð fram.

Bæjarstjórn telur eðlilegt að samráð skuli haft um fyrirkomulag fræðslumála og samþættrar þjónustu við börn þar sem kostnaður af málaflokknum leggst á Grindavíkurbæ.

Bæjarstjórn óskar eftir að fá fund með framkvæmdanefndinni til að fara yfir aðgerðaáætlunina.

2.      Sóknaráætlun Suðurnesja - Stuðningsaðgerðir í þágu atvinnulífs í Grindavík - 2508012

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hallfríður, Inga Fanney og Birgitta Hrund.

Nýlega er liðinn umsóknarfrestur um fjárstuðning til smærri atvinnurekenda í Grindavík og úthlutun er lokið. Stuðningurinn er einkum ætlaður einyrkjum og smærri fyrirtækjum sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, eru í rekstri og hafa a.m.k. einn starfsmann á launaskrá og veltu undir 500 milljónum króna. Fjármunum skal varið til verkefna sem snúa m.a. að markaðssetningu, vöruþróun og nýsköpun. Styrkjum er hvorki ætlað að kaupa upp eignir né að greiða niður skuldir. Um er að ræða sérstakt átaksverkefni í Sóknaráætlun Suðurnesja. Heildarframlag ríkisins til þessarar aukaúthlutunar er 50 m.kr.

3.      Alþjóðasamtök eldfjallafræðinga - ráðstefna - 2508003

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Guðjón, Gunnar Már og Birgitta Hrund.

Lagt fram erindi frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, dags. 11. ágúst sl. þar sem spurt er hvort Grindavíkurbær væri til í að taka þátt undirbúningi og að senda inn tillögu um að fá ráðstefnu Alþjóðasamtaka eldfjallafræðinga hingað til lands.

Bæjarstjórn tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að afla frekari upplýsinga.

4.      Svæðisskipulag Suðurnesja - Tillaga - 2505005

Til máls tóku: Ásrún, Guðjón Svæðisskipulagsnefnd hefur samþykkt að senda endanlega tillögu að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2024-2040 til samþykktar sveitarstjórna á Suðurnesjum, skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og utanríkisráðuneytisins/Landhelgisgæslunnar, skv. 3 mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var borin undir innviðanefnd til kynningar áður en hún er lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar. Innviðanefnd mælir með því að bæjarstjórn samþykki tillöguna.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

5.      Krafa um endurheimt líkamsleifa - 2508013

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Guðjón, Inga Fanney, Gunnar Már og Birgitta Hrund.

Bæjarstjórn lýsir miklum skilningi á erindinu og tekur undir með bréfritara að það er þungbært að fá ekki lúkningu í málið. Bæjarstjórn tekur fram að málið er ekki á forræði Grindavíkurbæjar en bæjarstjórn lýsir vilja til að koma að málinu með þar til bærum aðilum.

6.      Samþykkt um breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar nr. 530-2022 - 2508017

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hallfríður, Birgitta Rán, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Hjálmar og Gunnar Már.

Lögð fram drög að breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar til fyrri umræðu.

Bæjarstjórn vísar breytingu á samþykktinni til síðari umræðu.

7.      Sveitarstjórnarkosningar 2026 - 2508016

Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Már, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Rán og Inga Fanney.

Lögð fram lögfræðileg álitsgerð um tilgreind álitaefni vegna kosningaréttar og kjörgengis í sveitarstjórnarkosningum í Grindavíkurbæ vorið 2026.

Bæjarstjórn telur álitsgerðina vera skýra um helstu álitaefni um framkvæmd sveitarstjórnarkosninga í Grindavík. Bæjarstjórn telur best að kosningar fari fram í Grindavík samkvæmt óbreyttum lögum og að ekki séu sett sérlög um kosningarétt og kjörgengi í Grindavíkurbæ.

8.      Innviðanefnd - breyting á varamanni - 2508015

Til máls tóku: Ásrún og Inga Fanney.

Tillaga frá Rödd unga fólksins um breytingu á varamanni í Innviðanefnd: Eva Rún Barðadóttir taki við sem varamaður í stað Ragnheiðar Eiríksdóttur.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

9.      Stjórn Kölku - breyting á varamanni - 2508014

Til máls tóku: Ásrún og Inga Fanney.

Tillaga frá Rödd unga fólksins um breytingu á varamanni í stjórn Kölku: Eva Rún Barðadóttir taki við sem varamaður í stað Helgu Dísar Jakobsdóttur.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

10.      Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2501030

Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar og Hallfríður.

Fundargerð 814. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 13. ágúst 2025 er lögð fram til kynningar.

11.      Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar 2025 - 2508010

Til máls tók: Ásrún.

Réttardagur verður sunnudaginn 21. september nk.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

12.      Bæjarráð Grindavíkur - 1683 - 2505009F

Til máls tóku: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

13.      Bæjarráð Grindavíkur - 1684 - 2506002F

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hjálmar, Guðjón, Birgitta Rán og Inga Fanney.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

14.      Bæjarráð Grindavíkur - 1685 - 2506004F

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hjálmar og Hallfríður.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

15.      Bæjarráð Grindavíkur - 1686 - 2507004F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

16.      Bæjarráð Grindavíkur - 1687 - 2508001F

Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, Hallfríður, Gunnar Már, Birgitta Rán, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Inga Fanney.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

17.      Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 88 - 2506001F

Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

18.      Innviðanefnd - 9 - 2506003F

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Hjálmar.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:40.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarráđ / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiđslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bćjarráđ / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviđanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bćjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bćjarráđ / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bćjarráđ / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiđslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiđslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiđslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiđslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bćjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bćjarráđ / 21. október 2025

Fundur 1693

Bćjarráđ / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviđanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bćjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bćjarráđ / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviđanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviđanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bćjarráđ / 9. september 2025

Fundur 1689

Bćjarráđ / 2. september 2025

Fundur 1688

Bćjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bćjarráđ / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bćjarráđ / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bćjarráđ / 2. júlí 2025

Fundur 1685

Bćjarráđ / 18. júní 2025

Fundur 1684

Afgreiđslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 87

Bćjarráđ / 3. júní 2025

Fundur 1683

Bćjarstjórn / 27. maí 2025

Fundur 586

Bćjarstjórn / 20. maí 2025

Fundur 585