1687. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 19. ágúst 2025 og hófst hann kl. 14:00.
Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni veturinn 2025-2026 - 2507019
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, forstöðumaður íþróttamannvirkja og frá UMFG: Ingibergur Þór Jónasson og Bryndís Gunnlaugsdóttir.
Bryndís kynnti sýn kkd UMFG á starfsemina á komandi leiktíð.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að fá fjárhagsáætlun UMFG fyrir næsta ár og leggja fyrir bæjarráð.
2. Fasteignir Grindavíkurbæjar - aðgerðaráætlun - 2409025
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar, Sindri Þrastason frá VSS og Grettir Haraldsson frá Verkvörðu (Teams).
Lagt fram minnisblað um stöðu viðgerða eigna sem skemmdust í jarðhræringum.
Bæjarráð heimilar að haldið verði áfram viðgerðum eignanna eins og fram kemur í minnisblaðinu þar sem fyrir liggur heimild í fjárhagsáætlun 2025.
3. Rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæsla í bænum - 2508009
Lögð fram greinargerð frá Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík, dags. 16. júlí sl. um rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæslu í bænum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja viðræður um útfærslu samkomulags um verkefni og rekstur slökkviliðsins í Grindavík.
4. Styrkir til Grindavíkurbæjar vegna uppbyggingar samfélagsins - 2411001
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs. Frá Rauða krossinum: Aðalheiður Jónsdóttir, Jón Brynjar Birgisson, Gísli Rafn Ólafsson og Elfa Dögg Leifsdóttir.
Farið yfir samskipti milli Grindavíkurbæjar og Rauða kross Íslands varðandi úthlutanir styrkja til uppbyggingar samfélagsins í Grindavík og að efla viðnámsþrótt íbúa í Grindavík.
Í september nk er fyrirhugaður stöðufundur þar sem gert er ráð fyrir að ítarleg samantekt á ráðstöfun styrkja liggi fyrir.
5. Farsældarráð barna - 2405127
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Grindavíkurbær á þrjá fulltrúa í farsældarráði þar af tvo kjörna fulltrúa. Bæjarráð tilnefnir.
Tillaga um fulltrúa í farsældarráð:
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri
Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar
Birgitta Rán Friðfinnsdóttir bæjarfulltrúi
Samþykkt samhljóða.
Tillaga um fulltrúa í framkvæmdahóp:
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri
Eggert Sólberg Jónsson sviðsstjóri
Samþykkt samhljóða.
6. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2507023
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram frumspá um rekstur ársins 2026 ásamt drögum að sviðsmyndum fyrir árin 2027-2029.
7. Frumvarp til laga um almannavarnir - Beiðni um umsögn - 2508008
Lögð fram umsögn Grindavíkurbæjar um frumvarp til laga um almannavarnir.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 17:30.