Einland - Auglýsing um framkvæmd innan verndarsvæðis í byggð

  • Skipulagssvið
  • 12. ágúst 2025

Auglýsing um framkvæmd innan verndarsvæðis í byggð

Bæjarráð Grindavíkur hefur falið skipulagsfulltrúa að auglýsa fyrirhugaða framkvæmd í samræmi við ákvæði 4. mgr. 6. gr. laga nr. 87/2015 um verndarsvæði í byggð.

Framkvæmdin felst í því að byggja fjárhús/vélageymslu á norðvestur horni lóðarinnar Einland í Þórkötlustaðarhverfi í Grindavík.

Fyrirhuguð framkvæmd er á skilgreindu landbúnaðarsvæði skv. Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032. Svæðið tilheyrir einnig verndarsvæði í byggð sem staðfest var í febrúar 2020. Öll uppbygging skal taka mið af þeirri stefnu og skilmálum sem sett eru fram um svæðið í verndaráætluninni.

Í meðfylgjandi gögnum má sjá nánari útfærslu og ásýnd:

Athugasemdum og ábendingum skal skila í síðasta lagi þann 27. ágúst 2025 inni á mál nr.1070/2025 á skipulagsgatt.is. En þar má einnig sjá frekari gögn. Þeir sem ekki gera athugasemdir fyrir tilgreindan tíma teljast samþykkir tillögunni.

Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum