Fundur 1686

  • Bćjarráđ
  • 16. júlí 2025

1686. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 15. júlí 2025 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Gunnar Már Gunnarsson, varamaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fannar Jónasson sat fundinn í Teams.

Dagskrá:

1.      Útkomuspá fyrir árið 2025 - 2507020

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.

Útkomuspá fyrir árið 2025 er lögð fram.

2.      Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2507023

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.

Lögð fram drög að forsendum fyrir fjárhagsáætlun 2026-2029.

3.      Starfsmannamál - 2507010

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og launafulltrúi.

Lögð fram tillaga um að uppsagnarfrestur hjá starfsmönnum Grindavíkurbæjar sem hafa ótímabundinn ráðningarsamnning verði 6 mánuðir ef uppsögn er að frumkvæði Grindavíkurbæjar. Um er að ræða tímabundna ráðstöfun fram til sveitarstjórnarkosninga í maí 2026 en hafi aðlögunartíma út árið 2026. Ef starfsmaður segir sjálfur upp störfum gilda um það ákvæði kjarasamnings og eru það 3 mánuðir.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum. Gunnar Már situr hjá.

Bæjarráð felur launafulltrúa að útbúa viðauka við ráðningarsamninga þeirra sem hlut eiga að máli.

4.      Leigusamningur vegna Kvikunnar 2025 - 2506029

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Leigutakar á Kvikunni hafa bakkað út úr samningnum.

5.      Ný vefsíða Grindavíkurbæjar - 2507001

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Lagt fram tilboð frá Hugsmiðjunni vegna áframhaldandi vinnu við nýjan vef Grindavíkurbæjar að fjárhæð 8.000.000 kr. Verkið var sett á bið í nóvember 2023.

Bæjarráð samþykkir tilboðið.

Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram og upplýsa bæjarráð um framvindu verkefnisins.

6.      Aðstaða UMFG til æfinga og keppni veturinn 2025-2026 - 2507019

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Rætt um aðstöðumál knattspyrnu- og körfuknattleiksdeilda UMFG veturinn 2025-2026.

Bæjarráð óskar eftir að forsvarsmenn UMFG til fundar við bæjarráð og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að koma á fundi.

7.      Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar. - 2503013

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Lögð fram fyrirspurn frá framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur og forsætisráðuneytinu um fyrirhugaða útleigu íbúða í eigu bæjarins ásamt tillögu að svarbréfi til þeirra.

Einungis 4 umsóknir falla undir þau skilyrði sem sett voru í auglýsingu og því munu 4 íbúðir fara í útleigu frá 1. september 2025. Bæjarstjóra falið að upplýsa nefndina um niðurstöðu málsins.

8.      Barnaverndarþjónusta Samvinna - 2501007

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Lögð fram drög að samningi um barnaverndarþjónustu ásamt áætluðum kostnaði Grindavíkurbæjar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög.

Bæjarstjóra falið að semja um endanlega kostnaðarhlutdeild Grindavíkurbæjar.

9.      Rekstur þjónustuúrræða í þágu fatlaðs fólks - 2501001

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Lagðir fram reikningar frá Suðurnesjabæ og Reykjanesbæ vegna sameiginrekinna stofnana.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að ræða við bæjarstjóra sveitarfélaganna.

10.      Víkurbraut 58 - Leyfisveitingar - 2506031

Lagt fram erindi frá sýslumannsembættinu á Suðurnesjum vegna umsagnarbeiðni um leyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II - A. Umsækjandi er Brimex ehf., kt. 441124-0230 vegna Geo Hótels að Víkurbraut 58 í Grindavík. Bæjarráð hafði áður afgreitt beiðni um rekstrarleyfi í flokki IV - A Hótel fyrir sama umsækjanda.

Bæjarráð Grindavíkur gerir ekki athugasemd við að veitt verði rekstrarleyfi í flokki II - A fyrir veitingastað að Víkurbraut 58, í samræmi við umsókn. Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Afgreiđslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bćjarráđ / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviđanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bćjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bćjarráđ / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bćjarráđ / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiđslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiđslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiđslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiđslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bćjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bćjarráđ / 21. október 2025

Fundur 1693

Bćjarráđ / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviđanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bćjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bćjarráđ / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviđanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviđanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bćjarráđ / 9. september 2025

Fundur 1689

Bćjarráđ / 2. september 2025

Fundur 1688

Bćjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bćjarráđ / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bćjarráđ / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bćjarráđ / 2. júlí 2025

Fundur 1685

Bćjarráđ / 18. júní 2025

Fundur 1684

Afgreiđslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 87

Bćjarráđ / 3. júní 2025

Fundur 1683

Bćjarstjórn / 27. maí 2025

Fundur 586

Bćjarstjórn / 20. maí 2025

Fundur 585

Innviđanefnd / 16. maí 2025

Fundur 8