Grindavíkurbær áformar að hleypa köldu vatni á íbúðarhverfi í Grindavík. Áhleypingin er svæðaskipt og má sjá svæðaskiptinguna á mynd hér. Tímaáætlun hér fyrir neðan er sett fram með fyrirvara um breytinga t.d. vegna jarðhræringa, breytinga á hættumati Veðurstofu Íslandi, breytinga á aðgangsheimildum lögreglustjórans á Suðurnesjum o.s.frv. Tilkynningar um breytingar á tímaáætluninni verða í gegnum heimasíðu Grindavíkurbæjar og pósthólf fasteignaeiganda í gegnum ísland.is.
Athugið: Víkurbraut 30-54 ásamt 27 og 29 munu ekki fá vatn í þessari atrennu.
Tímaáætlun áhleypingar er eftirfarandi*:
Eftirfarandi eru atriði sem mikilvægt er að fasteignaeigendur á umræddum svæðum hafi upplýsingar um:
Við áhleypingu verður fyrst skolað út úr lögnunum dreifikerfisins áður en þrýstingur byggður í kerfinu, því þurfa inntakslokar kaldavatnsins í fasteignum að vera lokaðir í upphafi.
Það kann að vera að dreifikerfi vatnsveitunnar innanbæjar leki eftir jarðhræringarnar. Það mun skýrast á næstu dögum eftir áhleypingu hvort kerfið sé í lagi og haldi þrýsting.
o Komi í ljós stór leki á dreifikerfi innan svæðis þá verður lokað fyrir aftur og farið í viðgerðir, ef kemur til þessa þá verður tilkynnt um það á heimasíðu Grindavíkurbæjar.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur heimilað Grindvíkingum og þeim sem starfa í Grindavík að dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. Grindavíkurbær fær aðstoð frá píparasveit almannavarna til að athuga/tryggja hvort inntaksloki sé ekki örugglega lokaður þar sem aðgengi er að fasteignum, þ.e. lykill hefur verið afhentur almannavörnum. Í framhaldi af því að þrýstingur er kominn á kerfið mun Grindavíkurbær fara í einskipt eftirlit með því hvort leki sé á inntaki í þeim húsum sem lykill hefur verið afhentur almannavörnum.
Varðandi fasteignir þar sem lyklar hafa ekki verið afhentir almannavörnum.
o Grindavíkurbær ber ekki ábyrgð á að loka fyrir inntak þeirra eigna þar sem lykill hefur ekki verið afhentur almannavörnum. Til að lámarka líkur á tjóni er mjög mikilvægt að fasteignaeigendur eða fulltrúi þeirra loki sjálfir tímanlega fyrir inntak eignar og verði í sinni fasteign þegar áhleyping á sér stað til að vakta hvort lekar séu á inntaki.
Ákvörðun um að opna fyrir inntaksloka og hleypa köldu vatni inn á fasteign er á ábyrgð fasteignaeiganda. Ekki er mælt með því að eigendur opni fyrir inntaksloka á meðan ekki er dvalið í húsi. Ef það á að opna inntaksloka fyrir kalda vatnið er mælt með því að húseigandi fái fyrst pípara til að ástandskanna lagnirnar til þess að lágmarka líkur á tjóni innanhús. Hvorki Grindavíkurbær né almannavarnir bera ábyrgð á lekum inn í húsnæði, þ.e. fyrir aftan inntaksloka. Komi upp leki innan húsnæðis ber eiganda að leita til eigin tryggingarfélags.
Stefnt er á að húseigandi geti hleypt vatni inn á kerfi hússins u.þ.b klukkustund eftir áhleypingu/útskolun skv. tímaplani hér að ofan, en ætti að gera svo að vel ígrunduðu máli hvort mögulegir lekar séu í lagnakerfum hússins.
Mikilvægt er að fasteignaeigendur séu með GSM síma og muni eftir húslyklum.
Verði húseigandi var við leka á inntaki við áhleypingu tilkynna lekan með því að hringja í síma Grindavíkurbæjar 420-1100. Þaðan verður upplýsingum komið til starfsmanna Vatnsveitu Grindavíkurbæjar. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir vegna áhleypingar á póstfangið veitur@grindavik.is
Götur innan svæða eru eftirfarandi:
Svæði 4: Árnastígur, Skipastígur, Ásvellir, Glæsivellir, Sólvellir, Hólavellir, Blómsturvellir, Litluvellir og Gerðavellir 17 og 19.
Svæði 5: Baðsvellir, Selsvellir, Hóskuldavellir, Efstahraun, Gerðavellir 1-15, Gerðavellir 48-52 og Iðavellir.
Svæði 6: Fjarskiptastöðin.
Svæði 7: Heiðarhraun, Hvassahraun, Staðarhraun, Borgarhaun, Leynisbraut, Leynisbrún, Hraunbraut og Víkurbraut 31 og 56.
Svæði 8: Arnarhraun, Skólabraut, Ásabraut, Fornavör, Suðurvör, Norðurvör, Staðarvör, Laut, Dalbraut og Víkurbraut 25.
Svæði 9: Iðnaðarsvæði vestan, Staðarhverfi.
Svæði 10: Víkurbraut neðan Ásabrautar, Sunnubraut, Hellubraut, Vesturbraut og Kirkjustígur.
Svæði 11: Víkurhóp, Norðurhóp, Austurhóp og Miðhóp.
Svæði 12: Vesturhóp, Suðurhóp og Stamphólsvegur.
Svæði 13: Víkurbraut 58-62, Stamphólsvegur 2, Austurvegur 1-24, Mánasund, Mánagerði og Mánagata 17-29.
Svæði 14: Víðgerði og Austurvegur 5 ( Víðihlíð).
Svæði 15: Túngata og Mánagata 1-15.
Svæði 16: Hópsheiði og Þórkötlustaðahverfi.
Svæði 17: Bakkalág.
Svæði 18: Ufsasund, Staðarsund, Hólmasund, Tangasund og Vörðusund.
Svæði 19: Arnarhlíð, Fálkahlíð, Mávahlíð og Lóuhlíð.
Svæði 20: Efrahóp.