Aukiđ ađgengi í Grindavík

  • Almannavarnir
  • 12. febrúar 2024

Almannavarnir hafa endurmetið heildaráhættu fyrir Grindavík með tilliti til verðmætabjörgunar íbúa og fyrirtækja fyrir nk. miðvikudag til föstudag.  
Til grundvallar er meðal annars uppfært hættumat Veðurstofu, þar sem dregið hefur verið tímabundið úr hættu vegna fyrirvaralausrar gosopnunar, hraunflæðis og gasmengunar. Áhættumatið byggir að auki á samspili fjölmargra þátta, svo sem vöktunar, varna og viðbragða á staðnum, veðurs og rýmingartíma.   
Niðurstaða áhættumatsins er að hægt er að opna fyrir aukið aðgengi að Grindavik, þrátt fyrir að ekki sé hægt að reikna með flóttaleið um Norðurljósaveg að Grindavíkurvegi. Reiknað er með að allir íbúar og fyrirtæki geti komist til Grindavíkur á einhverjum næstu þremur dögum, ef veðurskilyrði hamla ekki aðgengi, eða aðrar hættur skapast.  

Jarðkönnun sprungna í Grindavík er ekki lokið og því gilda áfram takmarkanir varðandi aðgengi að lóðum og opnum svæðum. Þeim sem sækja bæinn heim er bent á öryggiskort fyrir Grindavík.  

Þau sem eiga QR kóða þurfa ekki að sækja um hann aftur.  Áhættumatið gildir til fimmtudagsins 15. febrúar kl. 15:00 að öllu óbreyttu. 

Um 80 íbúar hafa undanfarna daga nýtt sér aðgengi í Grindavík dag hvern. Þau sem þegar voru búin að skipuleggja að fara til Grindavíkur á næstu dögum en falla ekki undir þetta nýja plan geta enn haldið sínu skipulagi. Þau geta hringt í síma 4443500, frá kl. 8:00 til 15:00 til þess að fá ítarlegri upplýsingar.  

Seinni part næsta föstudags og á laugardaginn er búist við slæmu veðri í Grindavík. Staðan verður svo endurmetin næstu daga.  
 
Miðvikudagur 14.febrúar (kl. 9-15) 
L 1 – L 5
 Heiðarhraun, Staðarhraun, Hvassahraun, Leynisbraut 13 a,b og c – blokkirnar, Leynisbrún og Leynisbraut, Borgarhraun, Arnarhraun, Hraunbraut, Skólabraut
G 1 – G6 Hlíð, Ásabraut, Víkurbraut 23, Fornavör, Suðurvör, Norðurvör og Staðarvör, Laut, Dalbraut, Víkurbraut 19, 21 og 21a, Sunnubraut, Hellubraut, Vesturbraut, Víkurbraut að Sunnubraut, Kirkjustígur, Lundur, Bjarg, Steinar, Akur, Garður
I1 – I6  Austurvegur ,Víkurbraut, Túngata, Marargata, Ránargata og Mánasund, Mánagerði, Mánagata 

Fimmtudagur 15.febrúar (kl. 9-15)  
H1-H7 
S1/ S3 / Þórkötlustaðahverfi  

Föstudagur  16.febrúar (kl. 9-15) 
V1-V5 
M1  


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 23. desember 2024

Jólakveđja frá bćjarstjórn

Fréttir / 18. desember 2024

Foreldranámskeiđ fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 8. desember 2024

Samverustundir 8.-13. desember

Fréttir / 8. desember 2024

Jólaađstođ félagasamtaka í Grindavík

Tónlistaskólafréttir / 4. desember 2024

Jólatónleikar 7. desember 2024

Fréttir / 3. desember 2024

Jólabođ eldri borgara úr Grindavík