Skipulag fyrir ţriđjudaginn 6. febrúar

  • Almannavarnir
  • 5. febrúar 2024

Á morgun þiðjudaginn 6.febrúar verður aftur farið í fyrra útgefið skipulag þar sem aðgengi að Grindavík verður með þeim hætti að íbúar fá fyrirfram skilgreindan dag til að fara til Grindavíkur í lengri tíma en áður.  

Eins og áður hefur komið fram þá var skipulagi breytt í framhaldi af uppfærðu hættumatskorti Veðurstofunnar þar sem fram kom að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi hafi aukist.

Aðkoma að Grindavík næstu daga verður bæði um Suðurstrandarveg og Nesveg en þegar ekið er frá Grindavík verður það um Norðurljósaveg inn á Grindavíkurveg.  Á lokunarpóstum verður starfsfólk sem skannar QR kóðann hjá öllum sem fara inn í bæinn, með þeim hætti er vitað hvað margir eru í Grindavík hverju sinni

Byrjað er að sinna beiðnum um aðstoð og heldur vinna áfram þar til öllum beiðnum hefur verið sinnt. Þegar aðstoð við íbúa, sem hafa óskað efir henni verður veitt þá verður það óháð fyrirfram ákveðnum tímaáætlunum og hólfaskiptingu.  Þegar íbúi fær boð um aðstoð fær íbúi QR kóða fyrir þann dag.   

Hér að neðan er uppfærð tímaáætlun fyrir næstu daga.  Þau sem eiga þá tíma sem fram koma hér fram að neðan geta nýtt þá QR kóða sem þau eiga. Þeir verða eindurnýjaðir og virkar fyrir þá daga sem um ræðir.  Ekki þarf því að sækja aftur um.

Vinna við beiðnir fyrirtækja er einnig í vinnslu – en hér að neðan kemur fram hvernig skipulagið er næstu daga.

Einstaklingar og einyrkjar

9:00 – 15:00
•    V1(Árnastígur og Skipastígur)
•    V4 (Litluvellir, Hólavellir, Sólvellir, Blómsturvellir og Höskuldavellir)
•    G2 (Ásabraut 14 og 16, Fornavör, Suðurvör, Norðurvör og Staðarvör)
•    H1 (Víkurhóp EKKI ÞÓ númer 24,26 og 28)
•    I2 (Túngata að frátöldum húsum nr. 23 og 25)
•    Þórkötlustaðir (A1,2,3 og B1) - Þeir sem sækja um að fara á gámasvæðið þurfa að sækja um og merkja inn sitt fasteginanúmer. Setja svo í skýringu að um gámasvæði sé að ræða. Ekki verður í boði að fara í hesthúsin þennan dag. 

Fyrirtæki
•    V4 – haft samband við viðkomandi 
•    G5 opið fyrir öll fyrirtæki 
•    S4 – Fyrirtæki hafi samband við atvinnuteymi í síma 660-0063
 

Hér má sjá uppfært skipulag í eignavitjun næstu daga

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 13. janúar 2025

Grindavíkursögur í Kvikunni

Fréttir / 13. janúar 2025

Seljabót lokađ 14. janúar

Fréttir / 30. desember 2024

Gámaplaniđ lokađ frá og međ 5. janúar

Fréttir / 19. desember 2024

Bjartsýnn á framtíđ bćjarins

Fréttir / 19. desember 2024

Messa í Grindavíkurkirkju á ađfangadag

Fréttir / 17. desember 2024

Ćvisaga Edda í Hópsnesi komin út

Fréttir / 8. desember 2024

Samverustundir 8.-13. desember

Fréttir / 8. desember 2024

Jólaađstođ félagasamtaka í Grindavík

Tónlistaskólafréttir / 4. desember 2024

Jólatónleikar 7. desember 2024

Fréttir / 3. desember 2024

Jólabođ eldri borgara úr Grindavík