(English below) Þann 30. nóvember býðst foreldrum fræðsla um líðan barna á óvissutímum og hvernig foreldrar geta stutt við börn sín. Fræðslan verður endurtekin 4. og 6. desember. Fræðslan er tæp klukkustund og verður í höndum sálfræðinga Litlu Kvíðameðferðarstöðvarinnar í Þjónustumiðstöð Grindvíkinga í Tollhúsinu, Tryggvagötu 19. Hægt er að velja um fræðslu á íslensku eða ensku. Allir foreldrar barna úr Grindavík eru velkomnir.
Vinsamlegast skráið þátttöku með rafrænum skilríkjum á Íbúagátt Grindavíkur:
https://grindavik.ibuagatt.is/, undir Félagsþjónusta / Fræðsla um líðan barna á óvissutímum.
Í ástandi þar sem mikil óvissa ríkir og neyðarástand gengur yfir er eðlilegt að upplifa ýmsar tilfinningar og finna fyrir auknum áhyggjum. Því er mikilvægt að huga að líðan bæði barna og fullorðinna. Börn eiga oft erfiðara með að tjá líðan eða gera það á annan hátt en fullorðnir. Stundum birtist vanlíðan í breyttri hegðun og hjá sumum börnum kemur það strax fram en hjá öðrum líður lengri tími. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um hvaða breytingar á hegðun barna eru eðlileg viðbrögð við aðstæðum og hvernig er best að takast á við þær.
Fræðslan verður endurtekin í fimm skipti og 25 pláss á hverri fræðslu:
30. nóvember kl. 16:30 - 17:30 (íslenska)
30. nóvember kl. 17:30 - 18:30 (íslenska)
4. desember kl. 16:30 - 17:30 (English)
4. desember kl. 17:30 - 18:30 (íslenska)
6. desember kl. 11:30 - 12:30 (íslenska)
Hér má finna hlekki á gagnlegar leiðbeiningar og aðstoð sem stendur íbúum Grindavíkur til boða.
Leiðbeiningar
Aðstoð
How can I support my child during a crisis?
On 4th December a parent support meeting on the wellbeing of children during crisis will be held at the Grindavik Service Center. The meeting will be in English and led by trained child psychologists from Litla Kvíðameðferðarstöðin. The Grindavik Service Center is at Tollhúsið, Tryggvagata 19, 101 Reykjavík.
Please register at Íbúagátt: https://grindavik.ibuagatt.is/, and go to Félagsþjónusta / Fræðsla um líðan barna á óvissutímum.
In a situation of great uncertainty and emergency it is normal to feel range of emotions with increased worries. Therefore, it is important to prioritize the well-being of both children and adults. Children often find it more difficult to express their feelings or do so differently than adults. Sometimes, a child’s distress is manifested in changed behaviour, which may appear immediately for some children, while for others, it may take longer. Therefore, it’s important for parents to keep in mind the effects of crisis on children and their behaviour, and how best to tackle it.
Guidance
Support