Til upplýsinga fyrir íbúa Grindavikur.

  • Fréttir
  • 23. nóvember 2023

Nú verður neyðarstigi Almannavarna vegna jarðhræringa í Grindavík fært niður á hættustig. Líkur á fyrirvaralausu eldgosi eru taldar minni en áður var en svigrúm til þess að bregðast við eldgosi eru taldar rýmri en áður.  Öryggi íbúa í Grindavík er haft í fyrirrúmi og því gæti þurft að rýma bæinn með mjög stuttum fyrirvara.

  • Íbúum verður frá og með fimmtudeginum 23. nóvember heimilt að fara inn í Grindavík til að sækja verðmæti og huga að eigum sínum. 
  • Á morgun 23. nóvember mun aðgangur vera frá kl. 11:00 til og kl. 16.00, þá verður bærinn rýmdur.
  • Metið verður daglega hvort svigrúm verður til opnunar á ný, og þá stefnt að hafa opið frá 9:00-16:00.

Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar þeyta sírenum og ljósmerkjum á ökutækjum og þýðir það tafarlaus rýming á svæðinu samkvæmt rýmingaráætlun.
Rýmingarleiðir út bænum eru eftir Suðurstrandavegi eða Nesvegi.

Tilhögun er með eftirfarandi hætti:

  • Íbúar í Grindavík beðnir um að skrá sig á www.island.is og fá þar heimild til þess að fara inn. Heimildin mun berast fljótt.
  • Þeir íbúar sem nú þegar hafa fengið staðfesta skráningu á beiðni til að fara inn í húseign þurfa ekki að sækja um aftur.
     
  • Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins og þeim sem aðstoða íbúa.
  • Grindavíkurvegur er lokaður, en hægt er að aka Nesveg og Suðurstrandarveg.
  • Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum, hámark 1 bíll á hvert heimili. Ekki er æskilegt að börn séu tekin með sökum aðstæðna á staðnum.
  • Gámabílar, gámar eða gámaflutningatæki, stórir sendibílar, kassabílar og kerrur eru ekki leyfð í íbúðahverfum vegna hættu á því að þau tefji eða hindri aðra umferð, með tilliti til öryggi fólks á svæðinu.  
     
  • Hvorki er virkt frárennsli né rennandi vatn þannig að ekki hægt að nota salerni í húsum í Grindavík. Stefnt er að koma upp salernum í bænum.  
  • Mælt er með að fólk komi með vatn og önnur matföng fyrir daginn því ekki er hægt að nálgast slíkt í bænum.
     
  • Hafa ber í huga að hús gætu verið ótrygg. Hægt er að hafa samband við viðbragðsaðila á staðnum.
  • Ekki er svigrúm til að íbúar flytji búslóðir sínar í burtu heldur að þeir geti tekið með sér helstu verðmæti og fatnað. Huga þarf að forgangsröðun þeirra hluta sem komast í bílinn sem notaður er.
  • Þeim íbúum í skemmdum húsum sem þegar hafa fengið leyfi er heimilt að flytja búslóðir sínar burt.
  • Mikilvægt er að hvert og eitt heimili skrái hjá sér þau verðmæti sem tekin eru úr húsunum og hafi samband við sitt tryggingafélags vegna þess.
  • Eigendur húsa eru hvattir til þess að koma kyndingu í lag en von er á kólnandi veðri á næstunni.
  • Iðnaðarmenn og íbúar verða að störfum í húsum þar sem hitaveita er ekki í lagi.
  • Íbúar eru hvattir til þess að ganga um og frá húsum sínum með þeim hætti að komið geti til rýminga með stuttum fyrirvara.
     
  • Mikilvægt er að þau sem fara til Grindavíkur fylgi tilmælum viðbragðsaðila á öllum stundum.
  • Athygli er vakin á að á sama tíma og íbúar fá aðgang er unnið að öðrum verkefnum í bænum.
  • Fjölmiðlum er heimilaður aðgangur.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 20. janúar 2025

Vinnustofa Sóknaráćtlunar Suđurnesja

Fréttir / 23. desember 2024

Jólakveđja frá bćjarstjórn

Fréttir / 18. desember 2024

Foreldranámskeiđ fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 17. desember 2024

Ćvisaga Edda í Hópsnesi komin út

Fréttir / 8. desember 2024

Samverustundir 8.-13. desember

Fréttir / 8. desember 2024

Jólaađstođ félagasamtaka í Grindavík