Skólastarf hefst á ný 

  • Fréttir
  • 21. nóvember 2023

Skólastarf hefst á ný 

Næstu vikur fer skólahald Grunnskóla Grindavíkur fram í Reykjavík. Á miðvikudag, 22. nóvember, býðst nemendum og foreldrum þeirra að koma í heimsókn á nýja starfsstaði og munu kennarar og starfsfólk skólans taka á móti nemendum og sýna þeim aðstöðuna. Skólastarfið mun fara fram á fjórum mismunandi starfsstöðvum í borginni fram að jólaleyfi. Þetta eru þeir staðir sem um ræðir:

1. -  2. bekkur verður í Hvassaleitisskóla  
3. - 4. bekkur verður í Víkingsheimilinu (staðsett við hliðina á Álftamýrarskóla) 
5. - 8. bekkur verður í Ármúla 30 
9. - 10. bekkur verður í Laugalækjarskóla 

Þátttaka er valkvæð og mikilvægt að hverju barni verði mætt á eigin forsendum. Foreldrar eru hvattir til þess að eiga opið samtal við börnin sín um hugmyndir þeirra um skólagöngu næstu vikurnar.  
Börnum stendur einnig til boða að fara í hverfisskóla þar sem fjölskyldan er búsett. Til þess að innrita barn í hverfisskóla hafa foreldrar samband beint við skólastjórnendur þess skóla. 

Staða leikskólabarna 
Stefnt er að því að opna leikskóla þar sem börn verði með kennurum sem þau þekkja og jafnvel foreldrum í byrjun til að auka öryggi þeirra. Þegar hugað er að leikskólavist er horft til þess að ákvarðanir sem verða teknar á næstu dögum séu vandaðar og í samræmi við það sem börnunum er fyrir bestu og í samráði við foreldra og starfsfólk leikskóla. Vænta frekari upplýsinga um leikskólastarf á næstu dögum.  

Staða starfsfólks leik- grunn- og tónlistarskóla 
Fræðslusvið Grindavíkurbæjar leggur áherslu á að starfsfólk leik- og grunnskóla fái tíma eins og aðrir til þess að ná áttum og vinna úr áföllum áður en þau snúa aftur til starfa. Rík áhersla er lögð á aðgengi að handleiðslu fyrir allt starfsfólk grindvískra skóla.  

Stuðningur við börn 
Börn sem ekki eiga kost á að sækja skóla, eða velja að fara í sinn hverfisskóla þar sem fjölskyldan er búsett, verður veittur sérstakur stuðningur í samræmi við lög um farsæld barna. Skólayfirvöld Grindavíkurbæjar koma til með að setja sig í samband við þá foreldra og kynna nánar þann stuðning sem þeim verður veittur.  
Hægt er að sækja upplýsingar og stuðning í þjónustumiðstöð Grindavíkurbæjar í Tollhúsinu við Tryggvagötu 19 eða hringja í sima 420 - 1100.  


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 29. nóvember 2023

Opnun Grindavíkurhafnar

Fréttir / 28. nóvember 2023

Stuđningstorg fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 27. nóvember 2023

Jólaađstođ félagasamtaka í Grindavík 2023

Fréttir / 24. nóvember 2023

Frekari rýmkun, flutningur stćrri hluta

Fréttir / 22. nóvember 2023

Til fasteignaeigenda í Grindavík

Fréttir / 20. nóvember 2023

Skólastarf hefst á ný 

Fréttir / 20. nóvember 2023

Frá bćjarstjórn Grindavíkur

Fréttir / 18. nóvember 2023

Tvíhöfđi í Smáranum