Hćttustig Almannavarna lýst yfir

  • Almannavarnir
  • 10. nóvember 2023

Hættustig Almannavarna vegna ákafrar jarðskjálftahrinu við Sundhnjúkagíga hefur verið lýst yfir. 

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir hættustigi Almannavarna vegna ákafrar jarðskjálftahrinu við Sundhnjúkagíga, norðan Grindavíkur.  

Skjálftar geta orðið stærri en þeir sem hafa átt sér stað og gæti þessi atburðarrás leitt til eldgoss. Hins vegar eru engin merki enn um að kvikan sé að leita á yfirborðið. Fylgst er vel með framvindunni.

Eins og áður eru íbúar hvattir til þess að fylgjast með upplýsingagjöf á almannavarnir.is, vedur.is og í fjölmiðlum.

Hættustig Almannavarna þýðir að hætta fer vaxandi og gripið er til ráðstafana til að tryggja sem best öryggi þeirra sem á svæðinu búa/dvelja. Slíkt er gert með því að efla viðbúnað á viðkomandi svæði.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 3. október 2024

Lokasorphirđa á morgun 4 .október

Fréttir / 27. september 2024

Mánudagskaffi í Reykjanesbć

Fréttir / 26. september 2024

Para- og fjölskylduráđgjöf

Fréttir / 23. september 2024

Réttađ í blíđviđri í Grindavík

Fréttir / 12. september 2024

Grindvíkingar ćfa í Kópavogi

Fréttir / 10. september 2024

Morgunkaffi međ Ásrúnu og Hjálmari

Fréttir / 4. september 2024

Kvikan opnar ađ nýju

Fréttir / 3. september 2024

Grindavíkurdćtur og glćpakviss

Fréttir / 2. september 2024

7. tbl. Grindvíkings komiđ út

Fréttir / 26. ágúst 2024

Kalka opnar ađ nýju í Grindavík