Styrktarhlaup/ganga á Ţorbjörn 9. september

  • Skemmtun
  • 7. september 2023

Þann 9. september næstkomandi verður haldið styrktarhlaup eða ganga á fjallið Þorbjörn. Grindvíkingum og öðrum áhugasömum er boðið að taka þátt í göngu/styrktarhlaupi á fjallið Þorbjörn laugardaginn eftir rúma viku. Klemenz Sæmundsson, skólameistari Fisktækniskólans og hlaupagarpur hyggst standa fyrir styrktarhlaupi/göngu á Þorbirni þennan dag. Hann ætlar að hlaupa 60 km (20 ferðir og alls um 5000m hækkun)  upp og niður fjallið í tilefni af 60 ára afmæli sínu. 

Skemmtiganga að frábæru útsýni hefst með leiðsögn kl. 11:00 (um 3 km. upp og niður).

Upplagt er að fara á frísbígolfvöllinn í skógræktinni norðan megin við Þorbjörn með fjölskylduna og grilla þar í notarlegu umhverfi ef veður leyfir.

Allur ágóði af hlaupinu rennur til blóð- og krabbameinslækningadeildar Landspítalans en þar  fara fram lyflækningar, einkennis- og stuðningsmeðferðir fyrir sjúklinga með krabbamein og blóðsjúkdóma.

Hvað er boðið upp á?

  • Skemmtiganga að góðu útsýni með leiðsögn
  • 3km (1 ferð upp og niður)
  • 9km (3 ferðir upp og niður)
  • 15km (5 ferðir upp og niður)
  • 30km (10 ferðir upp og niður)
  • 60km (20 ferðir upp og niður/um 5000m hækkun)
  • Frjálst fyrir hvern og einn að velja sér göngu-/hlaupalengd sem hentar
  • Vel merkt göngu/hlaupaleið
  • Veitingar í boði Samkaupa á staðnum
  • Drykkjarstöðvar uppi og niðri
  • Salerni á staðnum
  • Lifandi tónlist á staðnum
  • Frisbígolf fyrir þá sem vilja í skógrækt norðan megin við Þorbjörn
  • Frítt í Sundlaug Grindavíkur þennan dag
  • Margir góðir veitingastaðir í Grindavík
  • Merkt bílastæði við aðrein Þorbjörns á Grindavíkurvegi
  • Þetta verður einfald. Fólk skráir sig á staðnum – Bara mæta þegar hentar og velja sér vegalengd                                

(Klemenz sjálfur byrjar kl. 07:00 og verður að fram eftir degi)
Ekki keppni
Ekki tímataka
Ekkert þátttökugjald.
Þeir sem vilja styrkja gott málefni endilega leggja inn á reikning nr. 0123-15-123439, kt. 040963-2359 í Landsbankanum. Einnig verður baukur á staðnum sem hægt er að leggja pening í.  

Markmið hlaupsins / göngunnar

Markmiðið með hlaupinu/göngunni fyrir utan að safna fyrir góðu málefni og hollri hreyfingu, er að vekja athygli á hvílík útivistarparadís Þorbjörn og nærumhverfi fjallsins er. 

Hugmyndin er að byrja smátt en byggja hugsanlega á reynslunni og skipuleggja árlegt hlaup/göngu tengt Þorbirni jafnvel með keppni í huga.

Fyrir 10 árum síðan þegar Klemenz Sæmundsson var að detta í fimmtugt þá hjólaði hann hringinn í kringum landið á átta dögum tæplega 1400 km og hljóp Klemmann (Reykjanesbær-Sandgerði-Garður-Reykjanesbær) í framhaldi af því tæpa 24 km. 

Þá var ákveðið að safna fyrir Blóðlækningadeild Landspítalans.  Það söfnuðust 965,000 kr. sem deildin notaði til að endurnýja hjá sér setustofuna.

Þægileg gönguleið - Frábært útsýni

Ferðin á Þorbjörn er 30-60 mínútna gönguleið eða um 3 km upp og niður.  Gengið er af veginum við Þorbörn sem er lágreist fjall og um 240m á hæð. 
Uppi má virða fyrir sér útsýnið og fara ofan í hina djúpu Þjófagjá. Frá fjallinu er stórgæsilegt útsýni yfir Reykjanes, Reykjavíkursvæðið og alveg á Sæfellsnes þar sem jökullinn sést í öllu sínu veldi. Eins sést til gosstöðva við Merardali.

Uppi á fjallinum sjást ummerki braggabyggðar frá því á stríðsárunum. Hægt er að ganga niður fjallið sunnan- og norðan- megin og meðfram því til baka á upphafsstað. 

Um Þorbjörn

Þorbjörn er bæjarfjall Grindavíkur og mjög áberandi frá Reykjanesbrautinni þar sem hann rís yfir gufustróka Svartsengis, sem fleiri þekkja sem svæði Bláa lónsins. 

Fellið myndaðist í tveimur goshrinum á aðskildum ísaldartímabilum og merki þess eru augljós í sigdæld sem gengur í gegnum fellið. 
Þorbjörn er í um 50 km fjarlægð frá Reykjavík sem er innan við klukkustundar akstur frá borginni. 
 


Deildu ţessari frétt

AĐRIR VIĐBURĐIR

Fréttir / 20. janúar 2025

Vinnustofa Sóknaráćtlunar Suđurnesja

Fréttir / 23. desember 2024

Jólakveđja frá bćjarstjórn

Fréttir / 18. desember 2024

Foreldranámskeiđ fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 17. desember 2024

Ćvisaga Edda í Hópsnesi komin út

Fréttir / 8. desember 2024

Samverustundir 8.-13. desember

Fréttir / 8. desember 2024

Jólaađstođ félagasamtaka í Grindavík