Fundur 1646

  • Bćjarráđ
  • 14. júní 2023

1646. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 13. júní 2023 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Birgitta H. Ramsay Káradóttir, varamaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. Einnig sat fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.

Dagskrá:

1. Skipulagsgreining Grindavíkurhöfn - 2211029
Kynnt var skýrsla sem ber heitið Grindavíkurhöfn hafnarskipulag. Greining á þróun í hafnarstarfsemi. Starfsmenn verkfræðistofunnar EFLU unnu að gerð skýrslunnar og önnuðust kynninguna. Auk bæjarstjórnar var hafnarstjórn og skipulagsnefnd boðið að sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

2. Deiliskipulag íþróttasvæðis - 2106087
Deiliskipulagstillaga fyrir íþróttasvæðið lögð fram til umfjöllunar í samræmi við bókun skipulagsnefndar þann 5. júní sl.

3. Deiliskipulagsbreyting á lóðum við Bláa Lónið. - 2306007
Í samræmi við 2. mgr. 38. gr. skipulagalaga nr. 123/2010 óska Eldvörp ehf. eftir heimild til þess að breyta deiliskipulagi lóða sem Bláa Lónið notar undir sína starfsemi við Norðurljósaveg. Á fundi skipulagsnefndar nr. 121 þann 5. júní sl. var erindið samþykkt og því vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráði hefur verið falin fullnaðarafgreiðsla mála sbr. bókun bæjarstjórnar undir dagskrárlið nr. 11 á fundi nr. 541 þann 31. maí sl. Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða.

4. Breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032, íbúðarsvæði við ÍB3 (Laut). - 2209090
Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2018-2032 að lokinni auglýsingu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir komu á auglýsingartíma. Deiliskipulagstillaga fyrir Laut var auglýst samhliða.

Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna á fundi þann 5. júní 2023 og vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráði hefur verið falin fullnaðarafgreiðsla mála sbr. bókun bæjarstjórnar undir dagskrárlið nr. 11 á fundi nr. 541 þann 31. maí sl.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða og er skipulagsfulltrúa falið að afgreiða aðalskipulagstillöguna í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5. Deiliskipulag fyrir Laut - 2106115
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi í Laut í Grindavík í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir komu á auglýsingartíma. Samhliða auglýsingu deiliskipulagsins var auglýst breyting á gildandi aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna á fundi þann 5. júní 2023 og vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráði hefur verið falin fullnaðarafgreiðsla mála sbr. bókun bæjarstjórnar undir dagskrárlið nr. 11 á fundi nr. 541 þann 31. maí sl.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða skipulagstillöguna í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6. Breyting á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 - ósk um umsögn - 2305085
Reykjanesbær óskar umsagnar á breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035. Iðnaðarsvæðið I5 á Reykjanesi er stækkað og heimilt byggingarmagn aukið skv. uppdrætti og greinargerð VSÓ ráðgjöf dags 23. janúar. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við skipulagstillöguna á fundi þann 5. júní 2023 og vísaði henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráði hefur verið falin fullnaðarafgreiðsla mála sbr. bókun bæjarstjórnar undir dagskrárlið nr. 11 á fundi nr. 541 þann 31. maí sl.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða.

7. Deiliskipulag orkuvinnslu og iðnaðar á Reykjanesi - ósk um umsögn - 2305087
Reykjanesbær óskar umsagnar um nýtt deiliskipulag á Reykjanesi, unnin af VSÓ ráðgjöf ehf. Deiliskipulagið byggir á gildandi deiliskipulagi og gerir ráð fyrir sömu borteigum, vegum og mannvirkjagerð og eldra deiliskipulag. Í þágu atvinnuuppbyggingar og þróunar Auðlindagarðsins eru afmarkaðar nýjar lóðir við Lónsbraut til uppbyggingar atvinnustarfsemi sem getur nýtt afgangsstrauma frá Reykjanesvirkjun til fjölbreyttrar framleiðslu. Tillagan er auglýst samhliða endurskoðun aðalskipulags.

Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við skipulagstillöguna á fundi þann 5. júní 2023 og vísaði henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráði hefur verið falin fullnaðarafgreiðsla mála sbr. bókun bæjarstjórnar undir dagskrárlið nr. 11 á fundi nr. 541 þann 31. maí sl.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar samhljóða.

8. 2023 Fundargerðir stjórnarfunda Keilis - 2302123
Fundargerð 174. fundar stjórnar Keilis lögð fram til kynningar.

9. 2023 Fundargerðir stjórnarfunda Keilis - 2302123
Fundargerð 175. fundar stjórnar Keilis lögð fram til kynningar.

10. Skipulagsnefnd - 121 - 2306001F
Fundargerð 121. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.

11. Fræðslunefnd - 132 - 2306003F
Fundargerð 132. fundar fræðslunefndar lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarstjórn / 29. október 2024

Fundur 578

Innviđanefnd / 10. október 2024

Fundur 1

Samfélagsnefnd / 16. október 2024

Fundur 1

Bćjarráđ / 22. október 2024

Fundur 1668

Bćjarráđ / 8. október 2024

Fundur 1667

Bćjarráđ / 17. september 2024

Fundur 1666

Bćjarstjórn / 24. september 2024

Fundur 577

Bćjarráđ / 10. september 2024

Fundur 1665

Bćjarráđ / 3. september 2024

Fundur 1664

Bćjarstjórn / 27. ágúst 2024

Fundur 576

Bćjarstjórn / 21. ágúst 2024

Fundur 575

Bćjarráđ / 14. ágúst 2024

Fundur 1663

Bćjarstjórn / 23. júlí 2024

Fundur 574

Bćjarstjórn / 2. júlí 2024

Bćjarstjórn nr. 573

Bćjarstjórn / 25. júní 2024

Fundur 572

Bćjarstjórn / 11. júní 2024

Fundur 571

Bćjarstjórn / 3. júní 2024

Fundur 570

Bćjarstjórn / 30. maí 2024

Fundur 569

Bćjarstjórn / 21. maí 2024

Fundur 568

Bćjarstjórn / 7. maí 2024

Fundur 567

Skipulagsnefnd / 3. júní 2024

Fundur 133

Skipulagsnefnd / 8. maí 2024

Fundur 132

Skipulagsnefnd / 6. nóvember 2023

Fundur 128

Bćjarstjórn / 30. apríl 2024

Fundur 566

Bćjarstjórn / 23. apríl 2024

Fundur 565

Bćjarstjórn / 17. apríl 2024

Fundur 564

Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024

Fundur 131

Bćjarstjórn / 4. apríl 2024

Fundur 562

Bćjarstjórn / 10. apríl 2024

Fundur 563

Bćjarstjórn / 26. mars 2024

Fundur 561