Flaggađ gegn fordómum

  • Fréttir
  • 18. maí 2023

Í gær, 17. maí, var alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Í tilefni dagsins er regnbogafánanum flaggað í Grindavík þessa vikuna. Með því að flagga regnbogafánanum leggjumst við öll á eitt við að fagna fjölbreytileikanum og útrýma fordómum, í sama hvaða formi þeir birtast. 

Þennan dag árið 1990 tók Alþjóðaheilbrigðisstofnunin samkynhneigð af lista sínum yfir geðsjúkdóma. Fyrir þremur árum færði Alþjóðaheilbrigðisstofnunin flokkun tengda trans fólki frá geðsjúkdómum yfir í kafla um kynverund og heilsu. Á stuttum tíma hefur margt áunnist þegar litið er til lagalegrar og félagslegrar stöðu hinsegin fólks. Því miður er það þó svo að hinsegin fólk upplifir enn fordóma og mismunun. 

Grindavíkurbær samdi við Samtökin ’78 um aukna þjónustu við íbúa, starfsfólk Grindavíkurbæjar og nemendur í Grindavík árið 2020. Markmið samkomulagsins er að auka fræðslu um málefni hinsegin fólks á grunni jafnréttis og sjálfsagðra mannréttinda. Grindavíkurbær var aðeins þriðja sveitarfélagið til að ganga frá sambærilegum samningi við Samtökin ’78 og það fyrsta á landsbyggðinni.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 11. júní 2025

Sundlaug og íţróttaskóli 17. júní

Fréttir / 30. maí 2025

Sjómannadagshelgin í Grindavík 2025

Fréttir / 30. maí 2025

Listaverkagjöf til Grindavíkurbćjar

Fréttir / 30. maí 2025

Ađalsafnađarfundur 2025

Fréttir / 28. maí 2025

Allir vegir liggja enn til Grindavíkur

Fréttir / 26. maí 2025

Menningarmorgunn í Kvikunni

Fréttir / 22. maí 2025

Götuboltamót Stinningskalda 2025

Fréttir / 21. maí 2025

Sjómannadagshelgin í Grindavík 2025

Fréttir / 19. maí 2025

Ađalfundur knattspyrnudeildar UMFG