Fundur 1639

  • Bćjarráđ
  • 22. mars 2023

1639. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 21. mars 2023 og hófst hann kl. 15:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. 

Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. 

Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Formaður óskar eftir að taka inn mál með afbrigðum sem þriðja mál: 

2111026: Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands 

Samþykkt samhljóða.

Dagskrá:
1. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar - 2206049

Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og hafnarstjóri sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Farið yfir tillögur að nýju skipuriti.

2. Húsnæðisaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar - 2204050
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera viljayfirlýsingu um gerð leigusamnings út yfirstandandi kjörtímabil í þágu félagsþjónustu- og fræðslusviðs á Hafnargötu 8, þ.e. Hælsvíkurhúsinu.

3. Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands - 2111026
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Tillaga 
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera viljayfirlýsingu um gerð leigusamnings til 10 ára með heimild til framleigu til Fisktækniskóla Íslands. Að liðnum 5 árum tekur Fisktækniskóli Íslands við skyldum leigutaka samkvæmt samningi á Hafnargötu 8, þ.e. Hælsvíkurhúsinu. 

Með þessari viðleitni Grindavíkurbæjar er skorað á ríkisvaldið að tryggja skólanum húsnæðisframlag á fjárlögum til framtíðar í samræmi við aðra einkareknaframhaldsskóla. 

Tillagan er samþykkt með 2 atkvæðum meirihluta, Hallfríður greiðir atkvæði á móti.


4. Beiðni um viðauka - Búnaður í leikskóla - 2303042
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 600.000 kr. til kaupa á þurrkara í Laut. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.

5. Málefni fatlaðs fólks - Beiðni um viðauka - 2303041
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 4.649.000 kr. til að mæta kostnaði við þjónustu í málaflokki fatlaðs fólks. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með hækkun á framlagi jöfnunarsjóðs vegna málefna fatlaðra. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.

6. Beiðni um fjárstuðning vegna eineltismála - 2303037
Promis ehf. óskar eftir stuðningi að fjárhæð 250.000 kr. vegna kaupa á hettupeysum sem gefa á öllum 12 ára börnum á Suðurnesjum. 

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

7. Hafnargata 12a (Kvikan) - beiðni um viðauka - 2303052
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Lögð fram beiðni um viðauka vegna framkvæmda við útiglugga og hurðir í Kvikunni. 

Á fjárfestingaráætlun fyrir árið 2023 er samþykkt að setja 15 milljónir króna í verkefnið. Umsjónarmanni fasteigna reiknast til að kostnaðurinn verði rúmar 21 milljón króna og því er óskað eftir 6.300.000 kr. viðauka sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.

8. Uppbygging lóða við Víðihlíð - 2303050
Lagt fram bréf frá Synergía ehf./Render ehf., dags 13. mars 2023, varðandi uppbyggingu á lóðum merktum nr. 2, 3, 5 og 6 á deiliskipulagi fyrir Víðihlíð. 

Bæjarráð lýsir ánægju sinni með hugmyndina í bréfinu og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.

9. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar - 2301116
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi í afmælisnefndina: 

Aðalmenn: 
Aðalgeir Johansen 
Ásrún Helga Kristinsdóttir 
Emilía Ósk Jóhannesdóttir 
Kristín E. Pálsdóttir 
Lára Lind Jakobsdóttir 

Varamenn: 
Tómas Breki Bjarnason 
Valdís Inga Kristinsdóttir 

10. Erindi frá stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2303034
Lögð fram drög að ársreikningi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir árið 2022. 

Enn fremur er lögð fram bókun stjórnar SSS vegna skuldar HES við S.S.S. sem stjórnin leggur til að greidd verði upp á tveimur árum. Hlutur Grindavíkurbæjar er 6.163.443 kr. 

Bæjarráð staðfestir að Grindavíkurbær mun greiða sinn hlut.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarráđ / 6. júní 2023

Fundur 1645

Skipulagsnefnd / 5. júní 2023

Fundur 121

Skipulagsnefnd / 6. mars 2023

Fundur 116

Skipulagsnefnd / 15. maí 2023

Fundur 120

Bćjarstjórn / 30. maí 2023

Fundur 541

Bćjarráđ / 23. maí 2023

Fundur 1644

Bćjarráđ / 16. maí 2023

Fundur 1643

Frćđslunefnd / 4. maí 2023

Fundur 131

Hafnarstjórn / 8. maí 2023

Fundur 489

Bćjarráđ / 2. maí 2023

Fundur 1642

Skipulagsnefnd / 3. maí 2023

Fundur 119

Frístunda- og menningarnefnd / 3. maí 2023

Fundur 125

Frćđslunefnd / 17. apríl 2023

Fundur 130

Afgreiđslunefnd byggingamála / 19. apríl 2023

Fundur 71

Bćjarstjórn / 25. apríl 2023

Fundur 540

Bćjarráđ / 18. apríl 2023

Fundur 1641

Skipulagsnefnd / 3. apríl 2023

Fundur 118

Frćđslunefnd / 2. mars 2023

Fundur 129

Bćjarráđ / 4. apríl 2023

Fundur 1640

Bćjarstjórn / 29. mars 2023

Fundur 539

Bćjarráđ / 22. mars 2023

Fundur 1639

Skipulagsnefnd / 22. mars 2023

Fundur 117

Bćjarráđ / 22. mars 2023

Fundur 1638

Frístunda- og menningarnefnd / 9. mars 2023

Fundur 124

Bćjarráđ / 8. mars 2023

Fundur 1637

Bćjarstjórn / 1. mars 2023

Fundur 538

Frćđslunefnd / 27. febrúar 2023

Fundur 128

Bćjarráđ / 23. febrúar 2023

Fundur 1636

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2023

Fundur 115

Afgreiđslunefnd byggingamála / 16. febrúar 2023

Fundur 70

Nýjustu fréttir

Skert starfsemi á bćjarskrifstofu

  • Fréttir
  • 8. júní 2023

Sumar Ţruman fyrir 4.-7.bekk

  • Fréttir
  • 8. júní 2023

Annasamt í Grindavíkurhöfn

  • Fréttir
  • 7. júní 2023

Óskilamunir í Kvikunni

  • Fréttir
  • 6. júní 2023

Skólaslit í 1.-9.bekk og viđurkenningar

  • Grunnskólafréttir
  • 6. júní 2023

Fimm sjómenn heiđrađir

  • Fréttir
  • 5. júní 2023

Knattspyrnuskóli UMFG byrjađur

  • Fréttir
  • 5. júní 2023