Kynning á ađalskipulagsbreytingu – ÍB3 – ţétting byggđar í Laut

  • Skipulagssviđ
  • 30. janúar 2023

Grindavíkurbær leggur fram vinnslutillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er hér kynnt í samræmi við 2.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Breytingin varða skilmálabreytingu fyrir íbúðarsvæði ÍB3 í töflu 1 í greinargerð aðalskipulagsins vegna þéttingar byggðar í Laut. Bætt er við heimild til að byggja par- og raðhús við Laut, alls 7 íbúðir, til viðbótar við þegar tilgreinda þéttingarreiti. 

Opið hús verður hjá skipulagfulltrúa á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar, við Víkurbraut 62, fimmtudaginn 2. febrúar frá kl. 15.00 til 15.30, auk þess sem hægt er að sjá tillöguna hér:

Vinnslutillaga aðalskipulagsbreytingar – ÍB3

Að lokinni kynningu verður tillagan lögð fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu fyrir auglýsingu. Á auglýsingatíma tillögunnar gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að skila inn formlegum athugasemdum og umsögnum. Á auglýsingartíma aðalskipulagsbreytingarinnar verður samhliða auglýst deiliskipulagstillaga fyrir Laut, til upplýsinga má finna hana hér að neðan. 

Greinargerð deiliskipulagstillögu fyrir Laut
Uppdráttur deiliskipulagstillögu fyrir Laut
 


Deildu ţessari frétt