Laus störf: Starfsmaður á Bókasafni Grindavíkur

  • Fréttir
  • 20. janúar 2023

Grindavíkurbær óskar eftir að ráða starfsmann á Bókasafn Grindavíkur í 70% stöðu. Um framtíðarstarf er að ræða. Vinnutími er 8:00-13:00 alla virka daga. Starfið heyrir undir forstöðumann bókasafns.

Starfið felst meðal annars í þjónustu við nemendur og starfsfólk grunnskóla, afgreiðslu, frágangi og innheimtu safngagna, ásamt öðrum tilfallandi störfum.

Hæfniskröfur:

  • Lipurð í mannlegum samskiptum og mikill áhugi á starfi með börnum og unglingum er krafa.
  • Áhugi á barna- og unglingabókmenntum er kostur.
  • Starfsreynsla á bókasafni er kostur.
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum er kostur.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti.
     

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélag.

Við hvetjum fólk eldra en 20 ára af öllum kynjum að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Andrea Ævarsdóttir forstöðumaður bókasafns í síma 420-1141 eða í tölvupósti andrea@grindavik.is.

Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2023 og skulu allar umsóknir berast í gegnum umsóknarvef Grindavíkurbæjar.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í síðasta lagi 1. mars.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 6. febrúar 2023

Sokkinn bátur varð að ræðupúlti

Fréttir / 6. febrúar 2023

Viltu finna milljón?

Fréttir / 30. janúar 2023

Dagskrá bæjarstjórnarfundarins á morgun

Fréttir / 24. janúar 2023

Laust starf: Sálfræðingur

Fréttir / 19. janúar 2023

Laus störf: Starfsfólk í heimaþjónustu

Fréttir / 16. janúar 2023

Laust starf við leikskólann Laut

Fréttir / 13. janúar 2023

Tilkynning frá Kölku varðandi sorphirðu